Okkur vitandi hefur enginn innlendur fjölmiðill fjallað um, en einn úr ritstjórn lenti á eftir allundarlegum bíl á miðvikudaginn var. Það var Bentley EXP 10 á númerum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Sagan segir að ferðafólk um Sameinuðu arabísku furstadæmin geti fengið sér áfengi vandræðalaust. Það reynist ekki svo.

Tvennt skar í augu í Ármúlanum þann daginn. Annars vegna glæsileg kerran á erlendum númerum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi. Og síðar um kvöldið lyftist augabrún þegar bíllinn var gúgglaður. Kerra af þessari tegund kostar litlar 350 milljónir króna!!! Og við sem vorum svo nálægt því að keyra aftan á lúxuskerruna þegar viðkomandi snarhemlaði að óþörfu fyrir utan höfuðstöðvar VÍS. Líklega hæsti reikningur sem Sjóvá hefur nokkru sinni fengið ef við hefðum breytt afturhluta þessa bíls.

Kannski enn einn tækifærissinninn frá Mið-Austurlöndum að kaupa upp flottar vatnsmiklar jarðir á klakanum. Það er jú ekki eins og nóg sé af vatni í Dúbaí og nágrenni og ekki bjargar olían þeim mikið á næstu áratugum.

Alas, það var þó ekki erindi þessarar greinar. Fremur sú staðreynd að rúmlega fertug sænsk kona og ung dóttir hennar þurftu að dúsa fangageymslur í Dúbaí í nokkra daga nýlega sökum þess að konan fékk sér glas af hvítvíni um borð í flugvél Emirates á leið til Dúbaí.

Aðspurð við tollgæslu hvort hún hefði snert vín á leiðinni svaraði sú sænska sannleikanum samkvæmt að hún hefði drukkið glas af víni sem nóta bene var boðið af flugþjónum Emirates flugfélaginu í upphafi ferðar.

Konunni, Ellie Holman, var umsvifalaust fylgt af flugvellinum ásamt dóttur sinni og komið fyrir í fangaklefa þar sem hún og dóttirin fengu að dvelja í fimm sólarhringa án þess að fá svo mikið sem eitt símtal.

Holman er þó ekki laus mála. Hún þurfti að greiða rúmar tvær milljónir króna í tryggingu til að komast út en vegabréf hennar og dótturinnar voru gerð upptæk. Mæðgurnar eru fastar í Dúbaí þangað til dómur fellur í máli þeirra og það tekur nokkra mánuði hið minnsta.

Það ágætt að muna að þó eitt og annað sé sagt um yndislegheitin í löndum við botn Persaflóa þá er raunin oft allt önnur. Það stríðir gegn lögum að fá sér áfengi í SAF og útlendingar fá engan frípassa á annað þó auglýsingar ferðamálaráðs Dúbaí gefi annað til kynna.