Lesendur okkar vita sem er að síðustu misseri og ár hefur þótt gott að fljúga alla leið frá Evrópu til Tælands og heim aftur fyrir 65 til 70 þúsund krónur eða svo. Brátt verður hins vegar hægt að skottast þessa löngu leið fyrir svo lítið sem 46 þúsund krónur.

Air China að bjóða einstaklega hagstæð fargjöld til Bangkok í Tælandi á allnokkrum dagsetningum í nóvember og desember.
Það er alveg kostulegt tilboð á flugi þessa löngu leið en tilboðið þó þeim annmörkum háð að millilent er í Bejing í Kína bæði fram og aftur.
Einhverjum kann að finnast það mínus en öðrum plús því flug til Bangkok frá mörgum helstu borgum Evrópu tekur þetta tíu til þrettán klukkustundir í beinu flugi og mörgum hryllir við svo löngu flugi.en
Stærsti plúsinn hvað okkur Frónbúa varðar er þó sú staðreynd að Air China er að bjóða þetta verð fram og aftur til Bangkok frá bæði Danmörku og Svíþjóð í nóvember og fram í desember á tilteknum dagsetningum. Hér um að ræða ódýrasta farrými en innrituð taska fylgir með plús máltíð og morgunverður um borð. Ekki þarf heldur að bæta feitum seðlum við til að fá betri þjónustu og stærra fótapláss.

47 þúsund krónur frá Stokkhólmi til Bangkok og þúsund krónum ódýrara frá Köben.
Þetta merkir að önnur leiðin til Bangkok frá Kaupmannahöfn eða Stokkhólmi fæst á tilteknum dagsetningum niður í 23 ÞÚSUND KRÓNUR!!! aðra leiðina. Til að setja það í samhengi þá kostar skitinn miði á þjóðhátíð í Eyjum meira en það.
Vissulega þurfum við að koma okkur til Stokkhólms eða Köben en það er, þökk sé grimmri samkeppni, næsta hræbillegt í vetur. Fargjöld héðan allt niður í sjö þúsund krónur aðra leiðina og fimmtán fram og aftur. Sem merkir að áhugasamir geta komist fram og aftur til Bangkok á allra besta tíma fyrir svo mikið sem 60 þúsund kallinn eða svo.
Það er brandari á öllum tungumálum.







