Ekki nein ósköp sem þú færð fyrir sjötíu þúsund kallinn þessa síðustu og verstu. Rétt slefar fyrir eldsneytiskostnaði hringinn kringum landið að sumarlagi plús nokkrum pylsum á eldsneytisstöðvum N Eins. Það hljómar hjákátlega við hlið flugs alla leið frá Íslandi til hinnar einstöku Máritíus í Indlandshafi.

Sól, sumar og billegheit 24 sjö, 365 daga ársins. Velkomin til Máritíus.
Þýska flugfélagið Eurowings, sem meðal annars flýgur reglulega hingað til Íslands, er þessa stundina að bjóða kostakjör á flugi til þessarar litríku afrísku eyju í Indlandshafi. Eða hvað kallarðu flug fram og aftur frá Evrópu allt niður í 50 þúsund krónur?
Víst er umrætt tilboð aðeins í boði á tilteknum dagsetningum í október næstkomandi en er ekki október hér heima einn leiðinlegasti mánuður ársins?
Sem fyrr þurfum við klakabúar hér að gera okkur ferð til vinsælla staða í Evrópu til að geta skottast áfram með Eurowings niður í Indlandshaf en góðu heilli er samkeppnin það rík þessi dægrin að það er hægt per kjaft niður í fimmtán til þrjátíu þúsund krónur eftir farangurskröfum.
Ergo: við komumst alla leið niður á besta stað í Indlandshafi flugleiðis fyrir kringum sjötíu þúsund krónur eða svo.
Segið svo að púslin falli aldrei á réttan stað fyrir okkur almúgann 🙂
Vefur Eurowings hér.
Mauritius from Antoine Janssens on Vimeo.







