Það er kunnugum smám saman að verða ljóst hvernig Icelandair ætlar að ná aftur hylli feitra fjárfesta eftir herfilegan niðurgang á þeim vettvangi; með því að níðast sem aldrei fyrr á viðskiptavinum sínum.

Stjórnarformaður og forstjóri Icelandair. Þeir borga frekar feita sekt en að koma fram við eigin viðskiptavini eins og fólk. Skjáskot
Príma dæmi um þetta má finna á vef Samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hér.
Þar kemur fram, í nýlegri ákvörðun ráðuneytisins, að Icelandair beri að greiða tæpar 4,2 milljónir króna í sekt fyrir að láta farþega sína bíða klukkustundum saman í vél á brottfararstað án þess að gefa þeim vott né þurrt reglum samkvæmt.
Gaman að þessu. Látum liðið steikjast í sætum sínum klukkustundum saman án þess að gefa þeim svo mikið sem vatnsdropa.
Ítrekum það sem við höfum sagt hér áður og ítrekað. Icelandair er deyjandi flugfélag nema fyrirtækið sparki þessum þybbna forstjóra sínum sem hefur tekið félagið úr háloftunum í alvarlegt lágflug á annasamasta tíma í íslenskri ferðaþjónustu.
Ef þú ríður ekki feitum hesti þegar milljónir ferðamanna heimsækja Ísland og eða fljúga áfram gegnum Leifsstöð með flugfélaginu þínu ertu að gera eitthvað alvarlega vitlaust…







