Land andfætlinga hinu megin á hnettinum heillar jafnt Íslendinga sem aðra enda Ástralía og Nýja-Sjáland mögnuð lönd hvort sem litið er til mannlífs eða náttúrufegurðar. Ferðir þangað finnast reglulega á eitt hundrað þúsund krónur plús en nú vill svo til að það er hægt að negla flug fram og aftur niður í 74 þúsund krónur með topp flugfélagi.

Perth, höfuðborgin á vesturströnd Ástralíu nú í boði á kostakjörum.

Flugfélagið er Qatar Airways sem er að bjóða á tilteknum dagsetningum í október flug fram og aftur til annaðhvort Canberra eða Perth í Ástralíu frá velsku borginni Cardiff niður í 73.700 krónur. Reyndar með millilendingu í Doha en það breytir ekki því að verðið er 20 til 30% undir því sem reglulega gerist þessa leiðina.

Klárlega þurfum við að koma okkur til Cardiff til að njóta góðs af og þangað er nú ekkert beint flug.

Við gefumst ekkert upp samt. Ekki aðeins er okkar ástsæli fyrirliði íslenska landsliðsins að spila fótbolta með Cardiff heldur og er flogið héðan beint til ensku borgarinnar Bristol í vetur en sú er í næsta nágrenni við velsku borgina. Það sem meira er að við finnum flug fram og aftur til Bristol á tilteknum tímum allt niður í tólf þúsund krónur með easyJet.

Tólf þúsund plús 74 þúsund og við erum komin til sólríkrar Ástralíu og eigum flug heim líka undir 90 þúsund krónum alls!!!

Brilljant 🙂

Qatar Airways hér.

EasyJet hér.