Ein sprengja, sex skammbyssur og sautján hnífar er meðal þess sem ríkiseftirlitsmenn komust vandræðalaust með um borð í nokkur skemmtiferðaskip í Southampton í Bretlandi við eftirlit fyrr í sumar.

Hlaðin skammbyssa á áberandi stað í farangri. Ekkert vandamál að koma slíku tóli um borð í skemmtiferðaskip.

Það vægast sagt hörmulegar fréttir fyrir siglingaþyrsta því fátt á að koma fólki meira í slökunargírinn en skemmtiferðir með lúxus skemmtiferðaskipum. Og það á jú ekki að vera mjög flókið að koma í veg fyrir að hryðjuverkamenn geti gert usla á höfum úti með nútíma tækni.

En Bretar, líkt og Bandaríkjamenn, tala mikið en gera lítið þegar kemur að öryggi á ferðalögum. Eins og við höfum greint frá hafa eftirlitsmenn í Bandaríkjunum ítrekað komist um borð í farþegavélar með vopn af ýmsu tagi án þess að blikka auga. Og nú bendir allt til að í Bretlandi sé öryggi meira röfl á þinginu en á borði þegar allt kemur til alls.

Í Southampton er stærsta skemmtiferðahöfn Bretlandseyja og þaðan leggja af stað hartnær 40 prósent allra skemmtiferðaskipa í Evrópu á ári hverju og með þeim tæplega tvær milljónir ferðaþyrstra.

Einhver hefði haldið að Bretar gætu drullast til að hafa öryggispakkann í lagi en því fer fjarri samkvæmt nýlegri úttekt Samgönguráðuneytis Bretlands. Eftirlitsmenn sem tóku tékk í tvo daga í vetur komust um borð í helstu og besta skemmtiferðaskip heims með alls kyns vopn og vígatól vandræðalaust. Einn komst meira að segja með sprengju um borð og fékk bara bros hjá öryggis- og tollvörðum.

Það þarf varla að mála mynd af því hvað gerist ef hryðjuverkamanni tekst að sprengja gat á skemmtiferðaskip á ballarhafi. Full ástæða til að treysta Bretum varlega með yfirlýsingar um öryggi. Það virðist meira hjal en alvara.