Versta lággjaldaflugfélag Evrópu samkvæmt Skytrax. Annað versta erlenda flugfélag í Bandaríkjunum hvað varðar fjölda kvartana. Viðskiptavinir sem ekki fá að fljúga vegna yfirbókana eða fá töskur sínar í tætlum að flugi loknu bíða í fleiri mánuði eftir aðstoð eða bótum. Kannski er hörmungarþjónusta Wow Air Skúla Mogensen ástæða þess að sífellt færri sækja Ísland heim.

Margir skörungar hafa ýmsar skýringar á hlutfallslega fækkandi fjölda ferðamanna á klakann. Fyrir utan þá augljósu staðreynd að það sem fer upp kemur niður aftur, þá höfum við ekki séð neinn fræðing benda á að eitt allra lélegasta lággjaldaflugfélag Evrópu er risastór aðili á íslenskum flugmarkaði.

Wow Air hefur á afar skömmum tíma farið úr því að vera djásn og dásemd í að vera eitt allra daprasta lággjaldaflugfélag Evrópu. Og eins og ferðavanir þekkja, þá reynum við flest að forðast eldinn ef við brennum okkur einu sinni.

Fjöldi þeirra sem brenna sig á viðskiptum við Wow Air skipta þúsundum síðustu mánuði og ár. Þjónusta þar er lítil sem engin ef eitthvað bjátar á og flugfélagið er ekki með samning við neitt annað flugfélag þegar og ef eitthvað kemur upp á.

Ef áætlunarflug Icelandair frá London til Keflavíkur fellur niður vegna vandamála svo dæmi sé tekið er Icelandair með samning við önnur flugfélög sem sömu leið fljúga og geta komið farþegum sínum áfram gegnum annað flugfélag í versta falli. Wow Air hefur enga slíka samninga. Ef flugi Wow Air er aflýst frá einhverjum áfangastað flugfélagsins og næsta flug þeirra er fjórum dögum síðar, þá verða viðskiptavinir að gjöra svo vel að bíða í fjóra daga. Yfirleitt á eigin kostnað.

Wow Air er næstum með helming af flugmarkaðnum til og frá landinu. Getur ekki verið að stínker léleg þjónusta um þriggja ára skeið sé farin að telja hjá erlendu ferðafólki …