Það var og. Nýleg ferðaskrifstofa sem boðið hefur upp á lægra verð og sérstakari ferðir en hingað til hafa verið í boði hérlendis virðist hafa orðið græðgi og firringu að bráð.

Í upphafi var þessi að bjóða töluvert best út í heim. En það er af sem áður var.

Hreint óskiljanlegt með íslensk fyrirtæki en kannski er þetta kennt í viðskiptafræðunum í háskólunum. Ef vel gengur er aldeilis þjóðráð að HÆKKA verð á þjónustunni fram úr öllu hófi. Enginn hér á ritstjórn með viðskiptafræðigráðu, en einhvern veginn finnst okkur að ef vel gengur sé þjóðráð að LÆKKA verð jafnvel til að laða að fleiri og eignast miklu fleiri ánægðari viðskiptavini.

Ferðaskrifstofan Farvel, áður Oríental, er með þeim yngstu á klakanum og sú eina, lengi vel,  sem sérhæfði sig í pakkaferðum til Asíu. Margar flottar og ódýrar ferðir með þeim verið í boði undanfarin ár og flestir látið vel af. En nú virðist þessi ferðaskrifstofa hafa smitast af sömu græðgisbakteríu og aðrar innlendar ferðaskrifstofur.

Ein virkilega spennandi ferð þeirra í haust er flug til Balí á Indónesíu þar sem gist er í nokkrar nætur á flottu hóteli áður en við tekur sérdeilis safarík sigling með gamaldags seglskútu sem þó er með öllum nútímaþægindum. Um þá ferð alla má lesa hér en allur fjórtán daga túrinn kostar manninn 624 þúsund krónur eða rúmlega eina komma tvær milljónir króna fyrir par eða hjón.

Klárlega geysispennandi túr. Ekki bara er dvalið á hinni fallegu og hræbillegu Balí, heldur og er fleyið ekki af verra taginu. Eðaltúr í alla staði. Gallinn er bara verðið á pakkanum. Ein milljón, tvö hundruð fjörutíu og átta þúsund krónur á parið!!!

Við kíktum nánar á pakkann sem hér um ræðir og urðum fyrir miklum vonbrigðum. Það er virkilega feitt lagt á pakkann.

Samkvæmt vef skipafélagsins kostar túr fyrir tvo þann tíma sem ferð Farvel nær yfir alls 508 þúsund krónur fyrir tvo saman á þriðja farrými. Hótelið sem um ræðir í túrnum í fjóra daga kostar samkvæmt bókunarvef Fararheill alls 40 þúsund og flug til og frá Balí með Icelandair til London og Thai Airways til Indónesíu og sömu leið til baka kostar 110 þúsund á kjaft eða 220 þúsund alls.

Alls kostar ferðin á eigin vegum því 770 þúsund krónur fyrir tvo saman. Bara 62% lægra verð en með Farvel.

Vissulega er ferð Farvel tryggð í bak og fyrir og með í för skemmtilegur íslenskur fararstjóri. En ef við gefum okkur að 20 pör bóki ferðina hjá Farvel er hagnaður ferðaskrifstofunnar versus að þessi 20 pör ferðist á eigin vegum tæplega tíu milljónir króna. Fyrir tveggja vikna túr!!!

Það kallast græðgi. Punktur!