Þrjú hundruð og sextíu þúsund krónur hljómar kannski ekki svo ýkja mikið fyrir vinsæla stórvesíra á klakanum. Það var lágmarkskostnaður fyrir aðgöngumiða og gott sæti á heimsins magnaðasta golfmóti: Ryder-bikarkeppninni sem fram fer í Frakklandi síðar á þessu ári. Inn í það vantar auðvitað flugið og já, sex einstaklingar saman var lágmarkið.

Það er ekki allra að fylgjast með lokadegi Ryder-bikarkeppninnar í golfi. Skjáskot
Það er reyndar orðið of seint núna að tryggja sér sæti á þessu risamóti í íþróttaheiminum þar sem bestu Kanarnir etja kappi við þá bestu frá Evrópu. Það er ALLT orðið uppselt og það vitum við sökum þess að við skráðum okkur fyrir miðum strax í desember á síðasta ári. Fram í apríl var miði möguleiki en þá með þeim formerkjum að panta þurfti heilt borð með „sæmilegu“ útsýni yfir grínið á átjándu. Við borðið þurftu að sitja sex einstaklingar og hver og einn þurfti að greiða að lágmarki 360 þúsund krónur fyrir lokadaginn á mótinu sem aldrei þessu vant fer fram á besta stað skammt frá París í Frakklandi.
Með öðrum orðum þá þurfti að greiða rúmlega 2.1 milljón króna fyrir miða plús borð í stúku með sæmilega útsýn yfir lokaholuna lokadaginn á mótinu sem fram fer í lok september. Verðmiðinn per haus með flugi og gistingu í þokkalegu nágrenni skjagaði í hálfa milljón króna. Við höfðum eina viku til að greiða að fullu.
Það er einfaldlega of mikið fyrir meðaljón og meðalgunnu á klakanum þó klink sé fyrir bæjarstjóra Kópavogs og forstjóra Hörpu og fleiri slíka á spena almennings.
PS: Þó formlega séu allir miðar á Ryderkeppnina uppseldir eru, eins og alltaf, óprúttnir sem selja miða á okurprís á netinu. Það er því enn hægt að komast á mótið ef fólk sættir sig við að dvelja fyrsta daginn eða á æfingadaginn fyrir mótið. En þá þarf að punga út minnst tífalt upprunalegt verð.







