Þú gætir mögulega komið að harðlæstum dyrum í París á næstunni ef þú hefur bókað gistingu hjá Airbnb.

Ljúfust er París á vorin að okkar mati en kannski ekki ef þú dvelur á ólöglegum gististað.

Líkt og víða annars staðar eru borgaryfirvöld í frönsku höfuðborginni í stríði við leiguvefinn Airbnb. Tiltölulega strangar reglur gilda um útleigu á íbúðum í borginni og sökum þess að tugþúsundir þeirra sem bjóða eignir hjá Airbnb virða reglurnar að vettugi hyggst borgin senda lögreglu á vel yfir 43 þúsund íbúðir á næstunni til að ganga úr skugga um að þar sé enginn erlendur ferðamaður að skaufast.

Það, gott fólk, er rétt rúmlega 70 prósent af ÖLLU gistirými í París hjá Airbnb. Og súrt væri það að negla hinu fínustu íbúð með útsýni yfir Eiffel og alles aðeins til að heyra dyrabjölluna hringja, lögreglumenn fyrir utan og þér gert að hunskast út í snarhasti.