Ekki slæmur dagur fyrir þá farþega Icelandair sem hafa tímann fyrir sér. Sökum þess að flugfélagið spanderaði fimm vélum undir starfsfólk Samherja til Póllands og heim aftur um helgina verður flugfélagið að punga út 30 þúsund krónum til hundruða farþega sinna sem sitja fúlir með seinkanir til og frá Leifsstöð.
Vitum ekki með yfirstjórn Icelandair. Er vænlegra að senda fimm þotur til Akureyrar til að fljúga starfsfólki Samherja til Póllands á árshátíð en á móti vita að hundruðir viðskiptavina flugfélagsins verða að hanga á flugstöðvum fram úr hófi vegna tafa og vesens og eiga feita bótakröfu á flugfélagið í kjölfarið?
Í fyrsta lagi er það helber dónaskapur við þau hundruðir sem bókað áttu með Icelandair sunnudaginn 15. apríl að senda þeim puttann sísona. Icelandair vissi fyrir mörgum mánuðum, þegar þeir ákváðu að fljúga hundruðum starfsmanna Samherja í partí í Póllandi, að það yrði vesen. Icelandair er að keyra hverja einustu rellu 24/7 og vitaskuld hefur það áhrif á áætlun þegar fimm vélar eru allt í einu teknar úr umferð til að henda Samherjafólki í partí.

Forstjóri Icelandair. Betra að gera vel við vini sína á Norðurlandi en að halda áætlun. Skjáskot RÚV
Og þess vegna er þessi tilkynning á vef Icelandair sem við sjáum hér fyrir ofan. Þeir farþegar sem áttu bókað í flug í dag og á morgun með Icelandair fá ekki bara puttann heldur og verða að sitja sem fastast í Leifsstöð og víðar mörgum klukkustundum lengur en ráð var fyrir gert til að Icelandair geti bæði átt kökuna og borðað.
Þvílíkur stínker. Gamli síldarforstjórinn frá Neskaupsstað að gera Samherjavini sínum greiða og beinlínis kúkar á hundruð farþega sem hafa bókað með flugfélaginu undanfarna mánuði.
Ertu enn að furða þig á að við köllum eftir að síldarstjórinn í forstjórastól Icelandair fái sparkið?
PS: Bæturnar koma ekki af sjálfu sér. Þær verður að sækja til Icelandair ellegar Samgöngustofu. Þær gulltryggðar því Icelandair hefur engar málsbætur 🙂







