Þann 29. mars árið 2019, eftir rúmlega sex mánuði, mun Bretland formlega yfirgefa Evrópusambandið. Það mun að öllum líkindum hafa verulegar neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir ferðaþyrsta.

Töluvert breytist varðandi flug til Bretlands eftir slétta tólf mánuði.
Það gömul sannindi að það gengur ekki upp að eiga köku og borða hana líka. Annaðhvort áttu hana í skáp í búrinu eða þú leggur hana á borð fyrir gesti og gangandi. Þú gerir ekki hvoru tveggja.
Það virðist þó að mestu hafa verið stefna breskra stjórnvalda þann tíma sem liðinn er síðan meirihluti landsmanna ákvað í þjóðaratvæðagreiðslu að yfirgefa Evrópusambandið. Bretarnir telja virkilega ennþá að landið sé nafli alheimsins og þeir séu það ómissandi öllu og öllum að þeir geti sett línurnar gagnvart öðrum þjóðum í kjölfar úrsagnar þeirra úr ESB.
Alas, þeir einir um þá skoðun ef frá er talinn núverandi utanríkisráðherra Íslands, Guðlaugur Þór Þórðarson, sem slefar út á kinn í hvers sinn sem Tjallinn kemur til tals.
En hvers vegna vandræðalegt?
Jú, velflest flugfélög og ferðaskrifstofur selja ferðir og flug langt fram í tímann. Eitt og hálft ár fram í tímann algengt hjá stærri aðilum og eitt ár hjá þeim smærri. Nema nú eru aðeins sex mánuðir rúmir í úrsögn Bretanna frá ESB og ekkert bendir til þess að þeir bresku nái að dekka sitt borð fyrir þann tíma. Til dæmis hvað varðar flugsamgöngur. Bretar eiga nefninlega enga samninga um flugferðir við eina einustu þjóð eftir að úrsögnin er um garð gengin. Takist ekki einhvers konar samkomulag við ESB fyrir 29. mars á næsta ári leggjast flugsamgöngur erlendis að mestu af í Bretlandi.

Miðað við stöðuna í dag alls ekkert fráleitt að flugsamgöngur til og frá Bretland falli niður þann 29. mars 2019.
Leggjast flugsamgöngur af? Er það ekki fáránlega til orða tekið?
Svarið við því er stórt neibb. Með inngöngu í ESB á sínum tíma duttu allir loftferðasamningar Breta við aðrar þjóðir úr gildi og þeir féllu undir sömu samninga og aðrar þjóðir ESB. Ekki er útilokað að Bretar séu í óða önn að negla nýja samninga við stöku ríki og klári það áður en klukkan glymur. Nema að flugumferð í Bretlandi stendur á tveimur meginstoðum: Evrópu og Bandaríkjunum. Ekkert bólar á samningi við Evrópu og af fregnum að dæma vill Bandaríkjaforseti nýta sér bága samningsstöðu Breta og fá betri kjör á nýjum samningi en Bandaríkin hafa nú þegar við ESB með svokölluðu Open Skies samkomulagi. Open Skies felur í sér að mestu ótakmarkaðar heimildir flugfélaga beggja vegna Atlantsála til að fljúga á milli vandræðalaust.
Að mála sig út í horn
Bæði Theresa May og Donald Trump munu í sögubókum þykja meðal hörmulegustu þjóðarleiðtoga vestrænna ríkja en jafnvel þó Bretum takist að sleikja Kanann eins og þörf er á og ná samningi munu flugsamgöngur Breta samt sem áður verða lamaðar. Það eru jú milljónir Bandaríkjamanna sem fljúga til Bretlands ár hvert í því skyni að halda áfram til Evrópu. Það verður ekki hægt án samnings við ESB. Og nota bene, Ísland fellur undir ESB-reglur í þessu sem EFTA-ríki. Bretar munu því ekki geta flogið hingað til lands, eða Bandaríkjamenn gegnum Ísland til Bretlands, nema sérstakir samningar náist um flugsamgöngur. Bæði við Bandaríkjamenn og Evrópusambandið.
Líkur sækir líkan heim
En hverjar eru raunverulegar líkur á því að allt utanlandsflug Bretlands stöðvist þann 29. mars 2019?
Miðað við stöðuna í samningaviðræður ESB og Bretlands í dag er það alls ekki fráleitt. Lítið hefur miðað í samningaumleitunum sökum þess að Bretar telja sig ómissandi og sökum þess að þeir vilja sömu kjör utan ESB og þeir hafa innan ESB. Það gengur auðvitað ekki í samningaviðræðum og sérstaklega ekki þegar þú átt ekkert útspil. Bretar hafa öllu að tapa og ekkert að vinna með úrsögn úr ESB og þarf ekki ýkja vitiborið fólk til að gera sér grein fyrir því.
Líkurnar á þessu töluverðar. Stærsta lággjaldaflugfélag heims, easyJet, hefur þegar flutt höfuðstöðvar sínar frá London til Austurríkis vegna þessa og í smáa letri lággjaldaflugfélagsins Ryanair má nú finna klausu um að flugfélagið sé ekki bótaskylt ef vélar þess geta ekki flogið til eða frá Bretlandi eftir 29. mars 2019.
Hvað þýðir þetta fyrir okkur Frónbúa?
Ísland, eins og önnur EFTA-ríki, fellur undir reglugerðir ESB varðandi loftferðir. Náist ekki samningar milli Breta og ESB á næstu mánuðum verður íslenskum flugfélögum óheimilt að fljúga til Bretlands og breskum flugfélögum óheimilt að fljúga hingað.
Geta Íslendingar gert sérsamninga við Breta? Neibb. Það getum við ekki. Sem EFTA-ríki þá verðum við að beygja okkur undir velflestar reglur Evrópusambandsins og þar með taldar reglur um flugsamgöngur. Jafnvel þó við gætum það myndi það valda úlfúð meðal ESB-ríkja og jafnvel setja flug til annarra þjóða Evrópu í uppnám.
Spennandi tímar framundan 🙂







