Eins og lesendum Fararheill er kunnugt um beitir eigandi Wow Air, hinn danskættaði Skúli Mogensen, ýmsum misjöfnum brögðum gagnvart sínum eigin viðskiptavinum. Vel getur verið að flugfélag Mogensen sé líka að brjóta Evrópureglur.

Ekki virðist Wow Air fara mikið að lögum ef marka má tístvef flugfélagsins. Skjáskot
Full ástæða til að Samgöngustofa skoði málið ofan í kjölinn en erindi nokkuð á samfélagsvefnum Twitter vakti athygli okkar. Þar var hópi fólks sem átti bókað flug neitað um flug sökum yfirbókunar Wow Air. Það er að segja Wow Air seldi fleiri sæti en vélin leyfði, sem er merkilegt nokk bæði löglegt og algengt, en þegar allir farþegar létu svo sjá sig á tilteknum tíma var flugfélagið í vandræðum. Við slíkar aðstæður eru þó formlegar reglur til í Evrópu sem Wow Air, sem evrópskt flugfélag, verður að lúta og hlíta.
Formlega samkvæmt Evrópureglum á
flugfélag við slíkar aðstæður að óska eftir sjálfboðaliðum til að vera eftir og taka seinna flug gegn veglegri þóknun fyrir vikið og jafnvel gistingu og mat líka. Ef fólk sem á bókað flug er skilið eftir gegn vilja sínum þá ber flugfélagi að bjóða viðkomandi tvo kosti og það strax við höfnun. Annars vegar að bjóða annað flug til sama áfangastaðar eins fljótt og auðið er og gildir þá einu hvort flogið er með allt öðru flugfélagi. Hins vegar að endurgreiða farþega flugkostnaðinn og það SAMSTUNDIS ef sá eða sú kýs.Hér skal líka hafa hugfast að í ofanálag við þetta bætast við skaðabætur en þær þó greiddar úr síðar.
Sófar sógúdd. Eða ekki.
Nema að minnst einn aðili sem skilinn var eftir þegar flug sem hann átti bókað í, kvartar yfir því á tístvef Wow Air að hann hafi hvorki fengið beiðni um að vera eftir þegar hópi fólks var bolað frá borði, né heldur hafi hann hvorki fengið einn eyri endurgreiddan né mat eða drykk. Honum er sagt af starfsmanni Wow Air á Twitter að skrá kröfu sína og það fari eftir hefðbundnum leiðum. Sem hjá Wow Air þýðir fleiri mánuðir.
Að því gefnu að rétt sé er Wow Air að þverbrjóta Evrópureglur, og kemur ekkert á óvart miðað við nískupakkann hjá flugfélaginu, er alls óhætt fyrir Samgöngustofu og Flugmálayfirvöld að skoða málið ofan í kjölinn. Flugfélaginu ber skylda til að leita samþykkis fólks þegar það er skilið eftir og bæta þeim tjónið STRAX. Það afar greinilega ekki gert í þessu tilfelli og viðkomandi bara beðinn um að hafa sig hægan og senda óskir um bætur eftir hefðbundnum leiðum!!!
Mogensen ábyggilega nú þegar að íhuga að flytja flugfélag sitt til Litháen þar sem beygja má og sveigja reglur og lög eins og strá í vindi með vinum á réttum stöðum.
Vonandi kannski. Þetta íslenska flugfélag setur blett á Ísland og Íslendinga eins og staðan er. En því miður eru eftirlitsaðilar á klakanum færri en geirfuglar og lélegri en frambjóðendur Miðflokksins í Reykjavík. Sem þýðir auðvitað að herra Mogensen kemst upp með allt saman og endurtekur því leikinn aftur og aftur og aftur og aftur….







