Bókunarvefur Icelandair hefur tekið breytingum að nýju eins og sést á meðfylgjandi skjáskoti. Allt orðið fínt og flott og sexí og nútímalegt. Það er þó aðeins á yfirborðinu. Undir flottu húddinu er gömul og þreytt dísilvél.

Falleg er hlíðin og forsíða bókunarvefs Icelandair líka. En þar með lýkur jákvæðri umsögn. Skjáskot
Það orðin nokkur ár síðan við eyddum síðast tíma að fárast yfir fornaldar bókunarvél Icelandair. Þrátt fyrir myljandi hagnað um áraraðir bólar ekkert á fersku efni þar á bæ.
Víst er forsíðan falleg og sexí og um að gera að sýna Íslendingnum sem vill komast erlendis glæsilega mynd af Kirkjufelli. Kannski viðkomandi hætti við túrinn til Frankfurt og drífi sig bara til Grundarfjarðar…
Að gamni slepptu er það aðeins forsíða Icelandair sem hefur tekið sexí breytingum. Við þurfum enn að fletta þúsund síðum til að finna hagstæðustu fargjöld flugfélagsins. Hver leit sleppur aðeins í örfáar mínútur og þá þarf að endurtaka leitina. Engin leið að festa flug á tilteknu verði einn eða tvo sólarhringa fram í tímann eins og velflest nútímaleg flugfélög bjóða upp á. Þá blandar flugfélagið saman beinu flugi og flugi með fjórum, fimm stoppum og enginn möguleiki að skoða aðeins beint flug etc…
Dapurt prógramm í meira lagi.







