Hann er skrýtinn flugbransinn og fjölmargt þar á skjön við annað í heiminum. Það telst til dæmis ekki töf eða seinkun ef rella fer í loftið eða lendir 15 mínútum á eftir áætlun. Sömuleiðis þýðir „beint flug“ sjaldnast beint flug.

Frægt er orðið þegar Vigdís Hauksdóttir, fyrrum þingmaður, taldi að orðið strax væri það teygjanlegt hugtak að það gæti vel átt við um marga mánuði fram í tímann. Svo ekkert sé minnst á Mexíkóvegg fíflsins í Hvíta húsinu vestanhafs. Mexíkóvegg sem hefja átti framkvæmdir við strax á fyrsta degi nýs forseta…

Flugbransinn notast við svipaða aðferðafræði. Fyrir skömmu síðan auglýstu ferðaskrifstofurnar Úrval Útsýn og Vita Kúbuferðir og tiltóku báðar sérstaklega að um „beint flug“ væri að ræða.

Svo var þó ekki. Ekki í þeirri merkingu sem þorri almennings setur í það samhengi. Kúbuflugið beina fór beinustu leið til Montreal í Kanada og þaðan, eftir stopp, beinustu leið til Varadero á Kúbu. Svona svipað og auglýsa beint flug til Akureyrar en millilenda samt á Ísafirði. Fátt beint við það ekki satt.

„Beina“ flugið til Kúbu. Fyrst afdalaleið til Kanada og þaðan til Kúbu eftir stutt stopp. Skjáskot Flightaware

Það flækir svo málin enn meira þegar flugfélögin auglýsa beint flug hingað og þangað og meina þá raunverulega beint flug án stoppa á leiðinni. Þau haga seglum eftir eigin hentugleika.

Þetta fyrirkomulag þó ekki einskorðað við flug héðan. Beint flug er það sem erlendis kallast direct flight. Það merkir undantekningarlítið óbeint flug í raun því hér um að ræða flug á tiltekinn stað með stoppi á leiðinni. Galdurinn hins vegar sá að farþegum er óheimilt að stíga frá borði þótt millilent sé. Þeir verða að sitja sem fastast. Þeir fara því fræðilega „beint“ á áfangastað þó stoppið sé í mílufjarlægð frá beinni línu á áfangastað.

Raunverulega beint flug erlendis kallast hins vegar non-stop sem flókið er að þýða svo vel sé. Millilendingarlaust er kannski ein hugmynd. En það er óþjált og leiðinlegt orð.