Kannski ráð að fara varlega í að kaupa flugmiða með Icelandair næstu vikurnar og mánuði. Jafnvel þó flugfélagið leysi verkfallsmálin nú með flugvirkjunum sínum eru samningar flugfélagsins við flugmenn líka lausir og við munum hvernig það endaði síðast…

Það eru fleiri en flugvirkjar sem eru með lausan samning við Icelandair…

Ýmsar þær greinar sem birtar hafa verið í fjölmiðlum síðustu dagana virðast draga taum flugfélagsins Icelandair: „Níræðir farþegar missa af draumasiglingunni,“ „Foreldrar of seinir í brúðkaup dóttur sinnar,“ „félagi í háloftaklúbbnum nær ekki nýju meti.“

Ók, þetta síðasta auðvitað tómt bull af okkar hálfu. Punkturinn hins vegar sá að fjölmiðlarnir, sem auðvitað eru velflestir í eigu auðkýfinga hérlendis, kjósa fremur að benda á bágindi flugfélags sem greiðir milljarðamæringum milljarða í arð ár hvert heldur en mörg hundruð starfsmanna flugfélagsins sem telja sig eiga meira skilið fyrir vinnu sína. Svo eru menn hissa á hversu fáir treysta fjölmiðlum.

En það er barasta alls engin ástæða til að vorkenna fyrirtækjum þegar verkföll skella á. Allra síst fyrirtæki sem hefur að mestu skitið á flugvirkja sína síðan í lok ágúst!!!

Jamm, þú last þetta rétt. Samningar Icelandair við eigin flugvirkja hafa verið lausir síðan í ágúst. Icelandair hefur því haft um 110 daga til að ná samningum við starfsfólkið sitt og reynst ófærir um. Yfirlýsingar forstjórans þess efnis að þetta sé hið versta mál og komi illa niður á viðskiptavinum er því í raun hjóm eitt og þvæla. Ef honum var virkilega annt um viðskiptavini hefði aldrei komið til þessa verkfalls flugvirkjanna.

Annað sem er merkilegt er að forstjóri Icelandair, Björgólfur Jóhannsson, hefur um árafjöld vælt og röflað um allt of mikil ítök ríkisins. Kauði vill einkavæða allt undir sólinni og takmarka ríkisrekstur við rekstur skóla og sjúkrahúsa. Merkilegt þá hversu oft kappinn heimtar svo ríkisaðstoð við að kveða niður verkföll hjá eigin fyrirtæki…

Með tilliti til sögunnar, síðan Björgólfur Jóhannsson tók við forstjóradjobbinu hjá Icelandair, eru verkföll oftar regla en undantekning. Oftar en ekki þarf ríkið til að koma Icelandair til hjálpar og með spjátrung á borð við Sigurð Inga Jóhannsson í stóli samgönguráðherra er ekki ólíklegt að lög verði sett á verkföll flugvirkja svo eigendur Icelandair fái nú einhvern arð í árslok.

Víkur þá sögunni til flugmanna Icelandair og ástæðu þess að við vörum við kaupum á flugmiðum með flugfélaginu næstu misserin. Kjarasamningar flugmanna Icelandair eru LÍKA LAUSIR og líkt og með flugvirkjana bólar ekkert á nýjum samningum þar. Flugmenn flugfélagsins verið samningslausir frá lok september. Icelandair haft 80 daga eða svo til að negla nýjan samning við flugmenn sína en hvergi finnst stafur um nýjan samning í fjölmiðlum landsins.

Ergo: innan tíðar munu flugmenn líka verða langþreyttir á þófinu og fara fram á verkfall eins og gerðist síðast árið 2014. Þá er líklegra en ekki að þeir sem eiga flug með Icelandair þurfi að þreyja þorra og endurbóka með öðru flugfélagi. Hvenær það verður er ómögulegt að segja en varinn er jú alltaf góður 🙂