Íslendingar eru yfirleitt fljótir til þegar nýjungar hvers kyns koma á markaðinn og því má slá föstu að einhverjir þarna úti ferðist ekki þessa dagana án snjalltöskunnar sinnar. Kannski ráð að draga aftur fram þessar gömlu hefðbundnu á nýjan leik því mörg flugfélög hyggjast banna snjalltöskurnar á nýju ári.

Snjalltöskur bannaðar í flugi nokkurra flugfélaga frá og með næsta ári. Mynd Away

Fyrir þá sem ekki vita hafa snjalltöskur, smart luggage, rutt sér töluvert til rúms síðustu fimm til sex árin. Þetta almennt eins og hefðbundnar töskur með pláss fyrir nærur og snyrtidót en að auki kjaftfullar af tæknidóti sem gera eigendum kleift að hlaða snjallsíma og fartölvur, staðsetningarbúnað til að töskudruslan týnist síður, rafrænum þyngdarmælingum svo þú farir nú ekki yfir leyfilegt hámark og hnjaskskynjara svona ef þú vilt auðveldlega geta sótt bætur ef taskan kemur skemmd úr flugi.

Svo sem gott og blessað að nota allt þetta dót ef í töskunni eru ómissandi hlutir en gallinn sá að flestar keyra á lithíum rafhlöðum og þrátt fyrir að slíkar rafhlöður finnist í öllum farsímum, spjaldtölvum og fartölvum vilja mörg flugfélög ekki taka séns á snjalltöskunum. Það hefur jú sýnt sig að lithíum rafhlöður eiga það til að springa og skapa þannig eldhættu sem auðvitað er óvíða alvarlegra en í 40 þúsund fetum. Enn verra að ekki er auðvelt að fjarlægja rafhlöðurnar úr flestum snjalltöskum. Til þess þarf fagmann og í tilfellum er það alls ekki hægt nema skemma töskuna.

Bannið orkar þó afar tvímælis á meðan snjallsímar og fartölvur eru ekki bannaðar í flugi. Þar jú líka staðreyndin með margar þær vörur að þær keyra á lithíum-rafhlöðum líka og einnig þar er á köflum ekki hægt að skipta um rafhlöður eða taka þær úr ef á þarf að halda.

Velflest bandarísku flugfélögin munu banna snjalltöskur strax í byrjun næsta árs og sama gera áströlsk flugfélög. Óljóst er hvort evrópsk flugfélög taka upp sama sið í framtíðinni.