Einhverjum þarna úti gæti dottið í hug að það sé slæm hugmynd að auglýsa skammarlaust ferðir á golfvelli Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Þetta er jú maður sem  „grípur í píkur,“ telur alla innflytjendur vera viðbjóð og nauðgara og finnst ekkert að því að standa með Ku Klux Klan og nasistum. En hjá GB ferðum er hið besta mál að selja ferðir á golfvelli þessa megafávita.

Engu virðist skipta hvaða viðbjóð Donald Trump lætur frá sér fara. Ekkert hefur áhrif á ferðaskrifstofuna GB ferðir. Skjáskot

Nú þekkjum við ekki hugsanagang eigenda ferðaskrifstofunnar GB ferðir en það segir aldeilis sitt að þetta batterí sér enga ástæðu til að hætta að auglýsa og selja ferðir sem fylla vasa kynþátta- og kvenhatara af peningum. Enn eru til sölu golfferðir hjá GB ferðum á golfvelli Donald Trump í Skotlandi!!!

Hvað ætli þurfi til að þessi litla ferðaskrifstofa hætti þeim vitleysisgangi? Þarf Trump að gera meira en gera lítið úr innflytjendum, Mexíkóum, breskum andstæðingum Brexit, forseta Þýskalands, helstu fjölmiðlum heims og öllum konum með sjálfsvirðingu svo fátt eitt sé nefnt? Myndi ferðaskrifstofan auglýsa ferðir á golfvelli í eigu Adolf Hitler hikstalaust?

Vill ekki eigandi GB ferða fara að skoða sín mál í kjölinn. Eða toppar græðgi eigendanna allt sem mannlegt og eðlilegt getur talist?