Margt er mannanna bölið. Eins og til dæmis að eltast við tiktúrur og tískubólur daginn út og inn.

Skattaundanskot algeng hjá móðurfyrirtæki Booking.com. Um að gera að styrkja slíkt með viðskiptum. Ekki!

Nú skal tekið fram að enginn hér hjá Fararheill hefur nokkuð á móti bókunarvefnum Booking.com per se. Sá er og verður eflaust áfram einn vinsælasti bókunarvefur heims og ekkert nema gott um það að segja enda stundum þar að finna sérdeilis fín tilboð á gistingu hér og þar í veröldinni burtséð frá að eigendur Booking geyma fjármuni gjarnan í skattaskjólum eins og Sigmundur Davíð.

En lykilorðið í setningunni hér að ofan er „stundum“ vegna þess að Booking.com er stundum líka mun dýrari en samkeppnisaðilar þarna úti.

Við nefnum þetta enn einu sinni eftir að hafa hlustað á ferðasögu nýlega í veislu og þar var viðkomandi ekki í vafa um gylliboðin hjá Booking. Þau hjónin einfaldlega versluðu ekki við neinn annan aðila.

Þar sem við kunnum okkur hóf sögðum við ekkert en við gerum það hér. Og við gerum það með skjáskotum af okkar eigin bókunarvef. Bara örfá dæmi um hversu miklum peningum fólk getur hent fyrir róða einfaldlega með því að gera ekki verðsamanburð áður en bókað er blint gegnum Booking.com. Og öll vitum við hvaða orð við notum yfir fólk sem hendir peningum sínum út í loftið sísona…

PS: hafðu hugfast að hér er verið að tala um EINA nótt. Það fljótt að margfaldast ef gist er lengur.











Hér má glöggt sjá að á köflum er rúmlega TÍU ÞÚSUND KRÓNA verðmunur á sömu nótt á sama hóteli í sama herbergi hjá Booking.com og öðrum aðilum. Ef þig munar ekki um það áttu lítið erindi inn á Fararheill.is

En ekki taka bara okkar orð fyrir. Kannaðu málið sjálf/-ur hér að neðan.