Hér heima dúlla sex bandarískir karlmenn sér við að elta uppi og skera lítið lamb á háls í Breiðdalsvík og enginn segir neitt. Suður á Mallorca dunda ungir karlmenn sér mest við að drekka daginn út og inn og skapa usla. Spánverjinn grípur til aðgerða.

Alltaf gaman að haugfullum Bretum. Ekki!
Einn helsti vandræðastaður Spánar er Magaluf á Mallorca en þangað er örstutt frá Santa Ponsa sem er vinsæll áfangastaður Íslendinga á sömu eyju. Þar þykja ferðaþjónustuaðilar hafa farið offari að bjóða fávísum ferðamönnum, og þá helst Bretum, hræódýrar ferðir, gistingu og drykkju og vitleysu í og með.
Fararheill greindi frá því fyrir rúmu ári að bæjaryfirvöld á Magaluf hefðu gripið til aðgerða vegna drykkjuláta breskra ferðamanna. Opnunartími bara og áfengissala var takmarkaður og sektum beitt gegn hverjum þeim er drakk áfengi á almannafæri.
Nú skal ganga enn lengra enda fara boð og bönn að mestu inn um eitt og út um annað hjá mökkölvuðu fólki. Nú hafa hótel- og gististaðaeigendur á Magaluf skuldbundið sig til að henda umsvifalaust út gestum sem eru fullir 24/7. Sömuleiðis hafa ferðaþjónustuaðilar lofað að auglýsa Magaluf ekki sem djamm- og drykkjustað par exellens eins og verið hefur.
Gott og blessað.
En það vita þeir sem lesa sögu að boð og bönn hvers kyns vilja gjarnan springa upp í hausinn á þeim er reglur setja. Gott dæmi er megasprengja í vændi í Reykjavík í kjölfar ákvörðunar Ögmundar Jónassonar, VG, að leggja sektir og vesen á þá sem leita eftir vændi í Reykjavík. Flott ákvörðun hjá misvitrum stjórnmálamanni. Ekki!
Þannig að engum á að koma á óvart ef sprengja verður í drykkju og látum á næstunni á nágrannastað eins og Santa Ponsa þar sem engar sérstakar reglur gilda um drykkju og vesen. Vandamálin hverfa ekki með lögum og reglum…







