
„Valitor kappkostar að veita söluaðilum, bönkum, sparisjóðum og KORTHÖFUM á ferð um heiminn örugga, skjóta og þægilega þjónustu.”
Það er auðveldara að finna nál í heyrúllu en að vitna þá súperþjónustu sem skítafyrirtækið Valitor þykist veita fólki og fyrirtækjum samkvæmt ofangreindu. Í það minnsta vildi ENGINN starfsmaður ÞJÓNUSTUVERS fyrirtækisins greina frá nafni sínu þá þrjá sólarhringa sem einn úr ritstjórn þurfti á örlítilli hjálp að halda.
Það á ekki að koma á óvart. Sama fyrirtæki og neitaði að afgreiða fjölmiðilinn Wikileaks með kortagreiðslur og þar með taka hápólitíska ákvörðun gegn neytendum og almenningi, er auðvitað ekki að leyfa starfsfóki ÞJÓNUSTUVERS að greina frá nafni sínu. Þeir leyfa sér hins vegar að hljóðrita öll símtöl án þess að spyrja Jón eða Gunnu!!!
Einn úr ritstjórn gerði þau mistök að tiltaka rangt símanúmer þegar hann gaf upp farsímanúmer við stóra bókun með vísakortinu. Alles gut og allt gekk eftir þrautalaust. Það versnaði þó í því þegar bóka átti flug og dúllerí til baka.
Það er algjört lágmark að gefa upp nafn þegar viðskiptavinir óska eftir aðstoð. Þó ekki sé nema til að gefa til kynna að um persónulega þjónustu sé að ræða. Plús auðvitað að ef viðskiptavinur hefur nafn þjónustuaðila er auðveldara að leita réttar síns ef upplýsingarnar reynast rangar, villandi eða misvísandi.
En þjónustuaðili Visa á Íslandi, Valitor, hefur engan áhuga að veita neina þjónustu umfram hið allra brýnasta. Engin nöfn, engin svör við spurningum, enginn möguleiki að ræða við yfirmann. Þú skalt bara taka þá lágmarks skítaþjónustu sem við bjóðum. Og þú verður að taka þann kaktus í afturendann enda, sem endranær á farsæla Fróni, ekkert val um annað. Þú leitar ekkert annað eftir aðstoð vegna kortaviðskipta en þangað sem þinn viðskiptabanki sendir þig. Og viðskiptabankinn þinn leitar aðeins til þeirra sem geta boðið lægst í þjónustu hverju sinni. Ergo: Valitor.
Góðu heilli fyrir erindreka Fararheill þá er sú einnig í viðskiptum við Sparekassen Djursland í Danmörku og með danskt Visa kreditkort. Símtal í þeirra stöðvar skilaði árangri á heilum sextíu sekúndum og viðkomandi fékk að vita nafn þjónustuaðilans án þess að biðja um það. Heimavið eru nöfn þjónustuaðila hernaðarleyndamál.
Sem er stínker þjónusta…







