Tíðindi úr flugheimum þennan daginn. Allir þeir sem kaupa dýrustu vöru sem Wow Air býður upp á geta nú komist gegnum öryggisleit í Leifsstöð á tveimur mínútum í stað þeirra fimm sem það tekur oftast nær. Á meðan setur Icelandair upp leikrit fyrir farþega sína.

Flugfélögin íslensku auglýsa bætta þjónustu. Það má deila um það. Samsett mynd
Flýtimeðferð, fast track, gegnum öryggisleit er nokkuð sem mörg helstu flugfélög og flugvellir bjóða þeim farþegum sínum sem mest greiða fyrir sætin. Nú er slíkt í boði sé fólk að ferðast á dýrasta farrými Wow Air í Leifsstöð líka.
Flýtipakkinn væri sérdeilis frábær hugmynd ef ekki væri gerð sú krafa á mörgum stærri flugvöllum heims, að Leifsstöð meðtaldri, að mæta minnst þremur klukkustundum fyrir brottför í millilandaflug. Flýtimeðferðin í öryggisleitinni gerir því í raun ekki annað en lengja hangs-tímann í flugstöðinni sjálfri og það er leitun að fólki sem finnst tímanum vel varið á bekk í flugstöð. Þess utan, með stöku undantekningum, tekur öryggisleitin í Leifsstöð sjaldnast lengur en fimm mínútur. Það tekur lengri tíma að finna stæði í Kringlunni.
Ergo: fólk er því að borga extra fyrir lengra hangs í Leifsstöð og allir geta verið sammála um þeim peningum er frábærlega varið. Ekki!
Þá vekur og athygli að samkvæmt fréttatilkynningu Wow Air verður þjónustan fyrst um sinn fyrir þá sem mest borga en í framtíðinni eiga allir farþegar Wow Air að geta fengið flýtimeðferðina. Nú ristir þekking á líkindafræði ekki sérlega djúpt hjá ritstjórn Fararheill en segir það sig ekki þokkalega sjálft að því fleiri sem nýta flýtiþjónustu því lengur tekur að fara gegnum flýtiþjónustu. Það allavega er raunin með þessa þjónustu vestanhafs.
Þrátt fyrir þessa stóru mínusa er þetta vissulega aukin þjónusta hjá Wow Air og það kemur spánskt fyrir sjónir því Wow Air selur sig sem lággjaldaflugfélag. Viðskiptavinir Icelandair aftur á móti munu í framtíðinni eiga von á leiksýningum um borð í vélum fyrirtækisins.
Það líka kemur spænskt fyrir sjónir. Flugfélag hvers þjónusta slefar í meðallag í besta falli ætti kannski að prófa aðra hluti en senda staffið á námskeið í leikrænni tjáningu með það í huga að flugþjónarnir ausi upp úr sér gullkornum frá Shakespeare og Dario Fo meðan á flugi stendur. Shakespeare og Fo aldeilis fínir til brúksins en varla í löngu flugi í níðþröngum sætum. Hefði ekki verið betri hugmynd að senda staffið á námskeiðin A) Hvernig á að stórbæta framkomu og þjónustu við flugfarendur, B) Mundu að orðið „vinur“ er hluti af orðinu „viðskiptavinur.“







