Jamm og jæja. Litla Icelandair kemst á lista yfir hundrað „bestu“ flugfélög heims árið 2016. Nánar tiltekið slefar inn á þann lista og fellur um sæti milli ára þrátt fyrir mega-auglýsingaherferðir sínar og spark í rass á örþreyttum stjórnarmönnum.

Eitt allra flottasta flugfélag heims. Ekki! Mynd Masaki Watanabe
Einhver óupplýstur þarna úti gæti ályktað sem svo að það sé nú feitur árangur hjá litlu íslensku flugfélagi að komast inn á topp hundrað hjá vefmiðlinum Skytrax en listar þeirra, sem oft eru kallaðir Óskarsverðlaun ferðaþjónustu á heimsvísu, eru alfarið á ábyrgð viðskiptavina þeirra fyrirtækja sem um ræðir. Það eru sem sagt viðskiptavinir Icelandair sem setja fyrirtækið í 82. sætið á topp hundrað lista Skytrax.
Þar er Icelandair í ágætum félagsskap. Risaflugfélög á borð við Sri Lankan Airlines, Juneyao Airlines og Air Seychelles eru á pari við Icelandair hvað þjónustustig varðar og af því má ráða að Icelandair er á tánum hvað þjónustu varðar (eða ekki).
Gallinn kannski sá að almenningur, íslenskur eða ekki, telur eðlilegt að norrænt flugfélag sé á pari við það besta í bransanum en ekki á pari við þriðja-heims flugfélög frá Kyrrahafi og Asíu. Það er samt raunin og kemur lesendum Fararheill varla á óvart enda við bent á skítapakka Icelandair um árahríð. Starfsfólkið er að gera sitt besta en það er illa launað og forsvarsmenn fyrirtækisins brosa í kampinn í hvert sinn sem mánaðarsporslurnar rúlla yfir fjórar milljónir króna. Á sama tíma telst nýtt starfsfólk Icelandair heppið að slefa yfir 330 þúsund krónur brúttó. Enginn lifir lengi á þeim launum.
Hörmungarlaun til starfsmanna er ekki eina vandamál Icelandair. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru gamlir, þreyttir, hvítir karlar sem halda starfinu þrátt fyrir 60% lækkun á gengi bréfa félagsins. Það segir okkur aðeins það að vinasamböndin á klakanum eru ívið sterkari en í eðlilegum fyrirtækjum þar sem forstjóri héldi starfinu í fimm mínútur við þær aðstæður. Hér er 60% lækkun bara gott mál og klapp á bakið á Björgólfi Jóhannessyni. Verst hve lífeyrissjóðir landsmanna eiga mörg bréf í þessu skítabatteríi. Það merkir að faðir þinn eða móðir þarf að fá bjúgu og uppstúf í matinn sjö daga vikunnar á elliheimilinu næstu árin.







