Fyrir skömmu greindum við frá því að Icelandair, flaggflugfélag Íslands, eyddi kerfisbundið út öllum neikvæðum umsögnum viðskiptavina á fésbókinni. Ekki nóg með það; flugfélagið eyðir einnig kerfisbundið út öllum neikvæðum umsögnum á Twitter líka.

Flottar vélar Icelandair. En sannleikurinn fer fyrir lítið hjá fyrirtækinu. Twitter Stephanie Takyif

Aldeilis makalaust hjá flugfélagi sem ekki hefur tímt að manna þjónustuver sitt svo sómi sé að um margra ára skeið. En að ráða sérstakan starfskraft til þess eins að gæta þess að ekki finnist neikvæður sérhljóði á samfélagsmiðlum segir allt sem segja þarf um þetta óþverrabatterí. Hugsa sér að lífeyrissjóðir landsmanna eigi bréf í slíkum viðbjóð.

Hvers vegna viðbjóð kannt þú að spyrja? Er ekki ósköp eðlilegt að fyrirtæki reyni að vernda orðstír og æru eftir bestu getu?

Svarið við því er nei. Það er einungis út af prettum á borð við að eyða út umsögnum þeirra sem ósáttir eru sem fyrirtæki komast upp með enn verri skít en ella. Væntanlegir eða hugsanlegir viðskiptavinir eru engu nær um raunverulega þjónustu Icelandair þegar þeir sjá aðeins þetta flotta og fína á helstu samfélagsmiðlum. Þess vegna flokkast það sem viðbjóður sökum þess að þetta eru blekkingar og blekkingar af öllum toga er viðbjóður. Það kemur í veg fyrir að viðskiptavinir komist að því að ekki eru alltaf jólin.

Hvernig getum við fullyrt að Icelandair sé að fiffa flottheitin á samfélagsmiðlum. Einfalt! Undanfarin ár hafa neikvæðar umsagnir verið margfalt fleiri en þær jákvæðu mánuð eftir mánuð, viku eftir viku, dag eftir dag. En allt í einu nú má leita til eilífðarnóns að einum einstaklingi sem finnst Icelandair eitthvað annað en það dásamlegasta í veröldinni á bæði Facebook og Twitter.

Er útilokað að Icelandair hafi kannski bara batnað til mikilla muna á örskotsstundu?

Já, það er útilokað með öllu. Fyrirtækið er í dúndrandi vörn gagnvart hluthöfum sínum eftir megahrap á hlutabréfamörkuðum. Fólki er sagt upp, starfsstöðvum lokað og ekki þarf stærðfræðikennara til að vita að niðurskurður bitnar ávallt á þjónustu fyrirtækis. Sem fyrir var ekki upp á marga fiska.

Þetta sést glögglega ef skoðaðar eru umsagnir á vefum sem töframenn Icelandair geta ekki komið nálægt og eytt eins og þeim sýnist. Eins og til dæmis einkunnavefurinn Skytrax. Síðustu fimm fyrirsagnir viðskiptavina á þeim vef um Icelandair eru:

  1. Value was not that great
  2. A dismal experience
  3. Kept delaying flights
  4. Staff were so friendly
  5. Everyone was sitting on the floor

Fjórar af fimm síðustu umsögnum um Icelandair eru neikvæðar. Ein jákvæð. Sem er aldeilis frávik frá Facebook og Twitter þar sem fimm af hverjum fimm umsögnum þessi dægrin fleyta Icelandair til skýjanna. Líkindafræðin segja allt sem segja þarf: slíkt er nánast ómögulegt.

Best að eiga viðskipti við heiðarleg flugfélög og sneiða alfarið hjá þessu skítabatteríi sem Icelandair er orðið.