Leiðinleg þessi eilífu falsheit hjá stórfyrirtækjum á borð við Icelandair. Er lífsins ómögulegt að koma fram af heilindum gagnvart fólki?

80 ára gamalt fyrirtæki? Ekki samkvæmt Ríkisskattstjóra…

Skjáskotið hér til hliðar er af fésbókarsíðu Icelandair og þar eru menn að rifna úr monti yfir 80 ára afmæli flugfélagsins. Verst að vélar flugfélagsins skjaga hátt í þann aldur.

En nú verður einhver gáfaðri en við hér hjá Fararheill að fræða okkur og Ríkisskattstjóra hvernig yfirmenn Icelandair geta montað sig af áttatíu árunum.

Það kemur nefninlega í ljós við skoðun hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra að Icelandair er bara tómur unglingur með bólur en ekki gamall höfðingi með lífstíð af reynslu í bankanum.

Hvað eru nokkrir áratugir á milli vina 🙂

Þetta má glöggt sjá á skjáskoti númer 2 hér til hliðar. Ekkert fyrirtæki eða dótturfyrirtæki Icelandair er eldra samkvæmt opinberum gögnum en tuttugu ára gamalt og þar um að ræða Flugleiðahótel. Icelandair ehf., sem rekur allt batteríið, er rétt að slefa yfir fermingaraldurinn.

Þannig að okkur er spurn hvort yfirmenn Icelandair séu að blekkja ríkisskattstjóra eða almenning í landinu með þessum fjöðrum sínum. Við setjum þúsund kall á að það er verið að plata fólkið eins og alltaf 😉