Hmmm. Hugsum okkur þjónustugrein þar sem viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér og er í öndvegi frá A til Ö 365 daga á ári. Nema náttúrulega þegar viðskiptavinurinn hefur alls ekki rétt fyrir sér og er sparkað frá borði í orðsins fyllstu.

Eini bissnessinn sem kemst upp með að selja meira af vöru en til er í búðinni eru flugfélög heimsins. Skjáskot

Velflestir hafa væntanlega orðið varir við uppþotið sem varð fyrr í vikunni þegar bandaríska flugfélagið United Airlines, eitt af þeim allra stærstu þar í landi, lét öryggisverði henda farþega úr vél sinni vegna þess að flugfélagið hafði selt of mörg sæti um borð.

Viðkomandi beðinn um að fara frá borði þrátt fyrir að hafa keypt miða og greitt að fullu eftir að í ljós kom að flugfélagið þurfti að koma fjórum starfsmönnum sínum sömu leið og það tafarlaust. Auðvitað liggur í augum uppi að henda einhverjum Economy Basic plebbum frá borði í staðinn.

Merkilegt nokk, er þetta heimilt og er líklega eina þjónustugrein heims þar sem leyfilegt er að henda viðskiptavini út í hafsauga vegna græðgi fyrirtækja í greininni. Því að yfirbóka flugvélar er auðvitað ekkert annað en græðgi þegar málið er hugsað til enda.

En illu heilli fyrir flugfélög heimsins sem áratugum saman hafa skitið á viðskiptavini er slíkt ekki hægt lengur án þess að komast í fréttirnar sökum þess að hver einasta sála á snjallsíma og þeir umsvifalaust teknir upp um leið og eitthvað óvenjulegt gerist. Sem er ástæða þess að hlutabréf United Airlines féllu umsvifalaust um tæpa ÞRJÁ MILLJARÐA KRÓNA!!! þegar atvikið komst í fréttirnar.  Hugsið ykkur: þrír milljarðar í súginn af því að flugfélagið vildi ekki bjóða meira þeim er reiðubúnir voru að stíga frá borði en þessi beisik 60 – 80 þúsund krónur!!!

Ljóst má vera að forstjóri United kemur sterklega til greina sem næsti maður ársins hjá Frjálsri verslun á Íslandi 🙂

PS: þessu tengt var blaðafulltrúi Icelandair spurður út í viðbrögð þess flugfélags við slíkar aðstæður. Sá blaðraði um hitt og þetta en blaðamaðurinn gleymdi alveg að spyrja hvað gerist þegar farþegi sem Icelandair þarf að koma frá borði neitar. Líklegt má telja að íslenska flugfélagið, sem er ekki að bjóða upp á sardínufarrými fyrir ekki neitt, myndi grípa til svipaðra aðgerða og United Airlines og auðvitað aðeins gegn sardínufarþegum.

Meira um að vera vísað frá borði eða neitað að fljúga hér.

https://youtu.be/HV28_ENzFog?t=4m13s