Fyrir tíu árum síðan hefði þótt aldeilis frábær lóttóvinningur að komast í flug til Barcelóna á Spáni fyrir aðeins 30 þúsund krónur aðra leiðina. Það þykir lítt spes lengur en það er engu að síður nálægt því meðaltali sem Wow Air heimtar fyrir farseðil aðra leiðina næsta sumar.

Spænska flugfélagið Vueling langtum ódýrari kostur en Wow Air til Barcelona í sumar. Samsett mynd
Við hjá Fararheill trúum ekki öllu sem við sjáum í flottum auglýsingum og má um kenna slæmu uppeldi eða lesblindu nema hvoru tveggja sé.
Okkur þykir líka sem ákveðinn Skúli Mogensen hafi nú tekið við sem súpermódelið 2017 á sama hátt og Björgólfur Thor Björgólfsson var toppmódelið 2007. Skúli er jú flottur til fara, vellauðugur og alltaf umvafinn merkilegu og skemmtilegu fólki. Merkilegt nokk ekki ósvipað fyrrnefndum Björgólfi Thor syni Björgólfs árin fyrir hrunið.
Það kann að vera rangt mat. Björgólfur skildi jú skattgreiðendur eftir með hundruð milljarða króna skuldir og glottir við tönn enn þann dag í dag. Svipti þaki af fjölda fólks sem enn lifir í örbrigð eftir að hafa fjárfest í húsnæði rétt fyrir hrun. Skúli ekki sekur um slíkt.
En Skúli Mogensen og Björgólfur Thor eru bestu vinir í dag og hvorugur þarf að líða mikinn skort þó annar þeirra hafi komið fjölmörgum á götuna. Aesop hinn gríski hafði ágætt orðatiltæki þess efnis að menn væru þekktir af þeim félagsskap sem þeir héldu. Hvaða ályktun eigum við lýðurinn að draga af því að einn ríkasti Íslendingur nútímans skuli vera náinn vinur ríkasta Íslendingsins 2007? Er það endilega plús fyrir herra Mogensen?
Í öllu falli, ekki trúa því að óséðu að flugfélagið Wow Air sé lággjaldaflugfélag. Það er allavega ekki raunin sé litið á fargjöld Wow Air á átta mismunandi dagsetningum til Barcelona næsta sumarið eins og sjá má hér að neðan. Við höfum nefninlega samkeppnisaðila sem raunverulega er lággjaldaflugfélag til samanburðar: Vueling.
Fargjaldamunurinn er nokkuð sláandi þegar tillit er tekið til þess að bæði Vueling og Wow Air kenna sig við lág fargjöld. Í stöku tilvikum er Wow Air 64 PRÓSENT dýrari kostur en Vueling. Og ágætt að muna að hvorugt flugfélag leyfir þér að hafa tyggigúmmí með um borð nema greiða aukalega fyrir. Ljóst má þó vera að þeir einstaklingar sem bókað hafa flug til Barcelona með Wow Air að undanförnu hafa borgað umtalsvert meira en þeir þurftu.
* Úttekt gerð kl. 22:30 þann 18. febrúar 2017 hjá báðum flugfélögum samtímis. Leitað að lægsta fargjaldi aðra leið út. Í fjórum tilvikum flugu félögin ekki sama dag héðan og því notast við næsta dag áður eða næsta dag eftir. Öll verð með öllum sköttum og gjöldum og verð Vueling færð í krónur miðað við gengi dagsins.







