Þeir sem kíkja inn á vef ferðaskrifstofunnar GB ferðir þennan daginn gætu farið verulega illa út úr því.

Forsíða vefs GB ferða í tómu tjóni. Skjáskot
Eins og sjá á á meðfylgjandi skjáskoti hér til hliðar er forsíða vefs GB ferða ólík því sem normið er. Þar sést ekkert letur heldur aðeins myndir og spurningarmerki um víð og dreif.
Eftir augnablik þar inni poppar upp nýr gluggi sem bendir lesendum á að þeir séu ekki með rétta stafagerð uppsetta til að geta lesið vef GB ferða á eðlilegan hátt. Þeir beðnir að hala niður nauðsynlegri íbót til að ráða bót á því.
Íbótin virðist við fyrstu sýn vera eðlileg og niðurfærslan virðist koma beint frá Google sem er 100 prósent trygging fyrir að allt sé eðlilegt.
UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM hala þessu forriti niður. Þetta er vírus og það af harðskeyttara taginu sem getur í verstu tilvikum lokað á aðgang að efni á tölvunni þinni.







