Icelandair að taka til í ranni. Nú virðast „hraðtilboð“ heyra sögunni til í bili og fram komið nokkuð sem markaðsmenn flugfélagsins kalla þrennutilboð. Nafnið ófrumlegt en tilboðin að þessu sinni flottari en við eigum að venjast frá Icelandair.

Meiri fita á flugtilboðum Icelandair nú en verið hefur lengi
Um er að ræða tilboð til þriggja áfangastaða flugfélagsins í Bandaríkjunum og þar um að ræða Boston, New York og Denver sem allt eru heillandi áfangastaðir hver á sinn hátt.
Stóri mínusinn auðvitað að tilboðsverð gildir aðeins um ferðir frá febrúar og fram í byrjun maí en stóri plúsinn á móti sá að sparnaðurinn er drjúgur miðað við hefðbundið verð á þessum leiðum. Það á sérstaklega við um ferðir til Denver en tilboðsverð fram og aftur þangað býðst niður í 56.200 krónur. Ekki gefið en hér ágætt að muna að normalt verð báðar leiðir utan annatíma er þetta 80 til 90 þúsund krónur. Fínn sparnaður þar.
Tilboðin til Boston og New York ekki alveg jafn safarík en þó þar líka sparar einstaklingur sér þetta tíu til 20 þúsund krónur fram og aftur miðað við hefðbundinn prís á þeim leiðum. Lægsta verð til Boston á tilboðinu er 36.200 krónur út og heim og til New York 42.300 krónur.
Óhætt að skoða vandlega þar sem afslættir nú eru drýgri en almennt gerist með hraðtilboð flugfélagsins. Líka fínt að muna að tvær töskur fylgja með í pakkanum hjá Icelandair vestur um haf.







