S tundum fara menn langt yfir skammt eftir góðum ströndum. Það kemur eflaust einhverjum á óvart að óvíða eru betri og öruggari strendur en í Danmörku.

Óvíða í heiminum eru fleiri strendur með Bláfánavottun en í Danmörku. Egholm strönd nálægt Álaborg er ein þeirra. Mynd Danmarkturist.

Óvíða í heiminum eru fleiri strendur með Bláfánavottun en í Danmörku. Egholm strönd nálægt Álaborg er ein þeirra. Mynd Danmarkturist.

Danir hafa nú orðið sér úti um alls 235 Bláfána svokallaða sem aðeins eru veittir fyrir fyrsta flokks hreinar og öruggar strendur. Til samanburðar er það aðeins Bláa Lónið hér á landi sem hefur fengið Bláfánavottun og aðeins þrjár strendur í Valenciufylki á Spáni státa af slíkri vottun svo eitthvað sé til tekið. Reyndar er litla Danmörk aðeins með helmingi færri Bláfána en Spánn í heild sinni.

Fussa má yfir slíkum vottunum en það er einu sinni svo að fólki er ekki alveg sama hvar menn stökkva til sunds í sjónum. Bláfánavottun fæst einungis ef vatnið er hreint og laust við skólp og annan viðbjóð sem flýtur um í höfum heimsins. Þá þarf ströndin sjálf að vera hreinleg og síðast en ekki síst þarf öryggi að vera í hávegum haft og aðbúnaður allur góður. Alls þarf að uppfylla 33 skilyrði til að geta stært sig af einum Bláfána.

Það kannski kemur á óvart en til að mynda á Spáni fer fjarri að strendur þar fái slíka vottun enda bæði strendur víða og vatnið sjálft ekki ýkja heilsusamlegt til sunds. Hafa aðeins örfáar strendur af tugum alls á geysivinsælum ströndum Valenciu eða í Murcía fengið slíka vottun.

Allar Bláfánastrendur í Danmörku hér.

Allar Bláfánastrendur á Spáni hér.