Einhverjir í ferðageiranum hér heima segja að Dúbaí sé með heitustu áfangastöðum landans og ferðir þangað seljist grimmt þó rándýrar séu. Fyrir þau ykkar sem þora að ferðast á eigin vegum er tíminn núna að negla ferð þangað og heim aftur.

Sextíu þúsund krónur fram og aftur til Dúbaí hljómar fantavel í okkar eyru 🙂

Það helgast af því að risaflugfélagið Emirates var að hefja nýársútsölu sína á ferðum og ólíkt tilboðum Icelandair og Wow Air hér heima eru engar takmarkanir á því hvenær fólk flýgur til að nýta sér tilboðsverðið. Það sannarlega merki um gott flugfélag sem tekur sér ekki húsbóndaleyfi hvenær skríllinn má fljúga á tilboðsverði og hvenær ekki.

Nei, hjá Emirates ræður þú hvenær þú ferð í loftið og hvenær þú snýrð til baka og hefur hlutina eins og þú vilt.

Ekki aðeins getur þú flogið á tilboðsverði fram til 7. desember 2017 án takmarkana heldur og flogið fram og aftur frá Gatwick eða Heathrow í London allt niður í 41.700 krónur BÁÐAR LEIÐIR!

Það ekkert minna en frábært tilboð en raunar hér um allra lægstu fargjöldin að ræða og þau finnast ekki á öllum dagsetningum. Gera má ráð fyrir að punga út aðeins hærri upphæð en jafnvel tíu þúsund krónur í viðbót breyta ekki því að tilboðið er fantagott.

En valið einskorðast ekki við Dúbaí. Hægt að rúlla sér til Indlands eða Íran jafnvel fram aftur fyrir litlu hærri upphæð frá London. Og enginn þarf að óttast að greiða aukalega fyrir túr til London. Bæði til Heathrow og Gatwick fást flugferðir héðan niður undir 20 þúsund fram og aftur með farangur.

Þetta allt saman merkir að áhugasamir geta unað sér í Dúbaí á næsta ári fyrir heilar 60 til 70 þúsund krónur á haus!

Hvernig hljómar það sem áramótaheit að ferðast meira til framandi staða 🙂 Allt um tilboð Emirates hér.