Alltaf gaman að uppátækjasömu fólki sem færa lit og líf í veröldina. Eins og óþekktur flugmaður í Þýskalandi gerði nýlega.

Nútímatækni gefur öllum með aðgang að netinu færi á að fylgjast með ferðum allra skipa og flugvéla hvar sem er í heiminum og hvort sem er í rauntíma eða að flugi loknu. Hver einasta hreyfing samstundis kortlögð og færð til bókar á augabragði.

Þetta hefur ókunnur flugmaður nýtt sér til að leika sér töluvert og skapað nokkur „listaverk“ á ferð um loftin blá í rellu sinni. Listaverk á borð við þetta hér:

Vinalegt í meira lagi hjá ókunnum þýskum flugmanni/listamanni. Mynd Flightradar

Vinalegt í meira lagi hjá ókunnum þýskum flugmanni/listamanni. Mynd Flightradar

Vart fer milli mála að þarna stendur Hello og líkurnar á að þetta sé tilviljun ein nákvæmlega engar. Mun þetta ekki vera í fyrsta skipti sem flugmaður sömu vélar dundar sér við að skrifa í skýin ef svo má að orði komast.