Zika tilfelli númer 1300 er opinberlega staðreynd í Flórídaríki samkvæmt Orlando Sentinel og guði sé lof að sjónvarpsmógúllinn og spjátrungurinn Ingvi Hrafn Jónsson er kominn er kominn af barneignaraldri.

Sú tegund moskító sem flytur Zika-vírusinn manna á milli. Hún er þekkt á hvítum doppum og gerir nú usla á Flórída.

Sú tegund moskító sem flytur Zika-vírusinn manna á milli. Hún er þekkt á hvítum doppum og gerir nú usla á Flórída.

Karlinn sá er nefninlega sú týpan sem myndi varla hugsa tvisvar um að setja undir meðan á dvöl í sólskinsríkinu stæði væri hann ungur og frískur. Skiptir þá zika engu máli til eða frá. Hann vill jú hafa frelsi til að gera hvað sem hann lystir ef marka má röfl hans á sinni eigin sjónvarpsstöð gegnum tíðina. Góðu heilli þarf hann nú hjálp til að pissa og varla maður í barneignir.

Undarlega hljótt hefur farið um hinn skæða zika-faraldur að undanförnu. Það efalaust með ráðum gert því enginn vill eyða tíma á stað þar sem stunga næstu moskítóflugu getur ekki aðeins gert mann fárveikan heldur og gert kvenfólki ókleift að eignast börn nema fötluð verði.

Hér ágætt að hafa hugfast að það er jafnan fólk með hagsmuni sem ræður ríkjum á bandarískum fjölmiðlum. Kannski fólk sem á hagsmuni undir að sem flestir haldi áfram að koma í heimsókn. Kannski fólk sem telur það fráleitt að vara fólk við hugsanlegum alvarlegum aukaverkunum af því að hitta fyrir moskítóflugu sem ber zika-vírusinn með sér.

En varinn er góður og ágætt að taka allra bestu ferðatryggingu sem völ er á áður en haldið er til Orlando alveg á næstunni. Hún bjargar engu ef fólk sýkist en kannski nýtist slík trygging til að hefja málaferli gagnvart yfirvöldum í Flórída ef raunin er sú að útbreiðsla zika-vírussins er mun meiri en gefið hefur verið í skyn.

Talandi um Orlando og nágrenni. Ef þú heldur að útbreiðsla zika sé einskorðuð við stöku hverfi í Miami má halda til haga að samkvæmt Center of Disease Control í Bandaríkjunum hafa nú verið skráð 200 tilfelli zika-sýkingar í miðfylkjum Flórida. Það er jú þar sem Orlandó er staðsett…