Flugfélagið Wow Air hefur á rétt tæpum mánuði fallið duglega niður um deild hjá einkunnavefnum Skytrax en sá þykir fremstur jafningja í þeim fræðunum. Þetta mun vera fyrsti niðurgangur Wow Air um tveggja ára skeið samkvæmt okkar bókum.

Hátt er fallið hjá Wow Air. Mynd Heads Up Aviation
Fararheill greindi frá því í vor sem leið að Wow Air hefði loks náð Icelandair þegar bæði flugfélög stóðu uppi með sex í einkunn af tíu mögulegum frá viðskiptavinum sem tjá sig á fyrrnefndum vef Skytrax. Wow Air þannig hlaupið upp úr þremur í meðaleinkunn meðan viðskiptavinir Icelandair gengisfelldu það fyrirtæki niður úr átta í meðaleinkunn.
Icelandair hangir enn í sexunni en hörmuleg reynsla nokkurra farþega Wow Air þennan mánuðinn fellir flugfélagið úr sex og niður í fjóra í einkunn. Sé miðað við gömlu menntaskólaregluna er Wow Air því fallið. Og sé tekið niður í nokkur ummæli farþega liggur ljóst fyrir hvers vegna það er raunin.










