Óhætt er að fullyrða að allnokkrir landsmenn hafa þegar fengið sig fullsadda á veðri og sérstakleega vindum á ylhýra föðurlandinu á þessari stundu og það þótt vetur konungur hafi ekki gert vart við sig ennþá að ráði. Það er til lækning við slíku: fjórtán dagar í sólinni á Tenerife og það fyrir klink og ingenting.

Út með regn og sút, inn með sól og sælu.
Ritstjórn rakst að æði flotta afsláttarferð Heimsferða til Tenerife á vef ferðaskrifstofunnar. Þar um að ræða pakkaferð 15. nóvember til 29. nóvember sem svona smellpassar fyrir alla þá sem vilja njóta jólanna heima brún og sæt.
Ferðaskrifstofan er að slá 60 þúsund krónur af pakka þennan tíma svo lengi sem gist er á hinu þriggja stjörnu Villa Adeje Beach og þar allt innifalið. Túrinn atarna kostar tvímenninga alls 259.790 krónur eða 129.895 krónur á mann. Það aftur gerir 9.278 krónur hver dagur á haus og er virkilega vel sloppið á annatíma á vinsælli strönd á Tenerife og allt innifalið.
Um að gera að grípa þessa gæs því verðmunur á þessu og sömu ferð á næsta hóteli fyrir ofan nemur tæplega 150 þúsund krónum.







