Hreint ekkert ókeypis að sigla með fyrsta skemmtiferðaskipinu sem siglir hina frægu Norðvesturleið frá Kyrrahafinu og yfir í Atlantshaf meðfram strönd Kanada og Grænlands. Ódýrasta kojan um borð kostar manninn 2,6 milljónir króna.

Efist einhver um hlýnun jarðar er óhætt að grafa þann efa. Kort Washington Post
Það heillar líklega vellauðugt fólk að fara slíka ferð og monta sig af í framhaldinu því það seldist upp í ferðina atarna á tæpri viku í vor og svo góðar voru undirtektirnar að önnur slík lúxusferð er skipulögð strax næsta vor. Siglt er frá Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna og endastöð er New York 32 dögum síðar ef allt gengur að óskum.
Illu heilli fyrir þá fræðinga sem spáð hafa Íslandi frægð og frama þegar sú leiðin opnast kemur þetta fyrsta skemmtiferðaskip ekkert nálægt strönd landsins. Þess í stað fer túrinn niður eftir vesturströnd Grænlands og samkvæmt fregnum frá Grænlandi hafa menn þar örlitlar áhyggjur af stöðu mála. Það er jú ekki eins og hundrað manna smáþorp hér og þar á vesturströndinni geti tekið mót 1700 manns af skemmtiferðaskipi sísona.
Washington Post fjallar um jómfrúarferðina um Norðvesturleiðina og þar vara margir vísindamenn við túrnum. Enn sé nokkur ís á leiðinni og komi eitthvað alvarlegt upp á á þessum norðlægu slóðum geti fátt bjargað. Ekki einu sinni vel mönnum strandgæsla Kanada ræður við að bjarga hundruðum farþega á þessum slóðum þegar og ef.







