Við eigum nánast ekki eitt aukatekið orð. Ekki nóg með að flugfélögin skeri inn að beini fjárhagslega með „aukaferðum“ sínum til Parísar fyrir leik Íslands og Frakklands í átta liða úrslitum. Úrval Útsýn bætir um betur og er þá fokið í öll skjól.

Það er ekkert annað! Flug til Parísar plús tvær nætur á þriggja stjörnu hóteli fyrir 170 þúsund krónur takk fyrir. Skjáskot
Er það í genum í fólki hjá stórfyrirtækjum að níðast eins og framast er unnt á almenningi loks þegar landinn sameinast um nokkurn skapaðan hlut? Hvað varð um hluti eins og sanngirni, viðleitni og samhug? Fólk hjá Icelandair og Wow Air mætti kynna sér orðin í næstu orðabók og nú líka starfsfólk ferðaskrifstofu Pálma Haraldssonar, stórsvindlara.
Skjáskotið hér til hliðar segir sennilega alla söguna. Þar er „sértilboð“ Úrval Útsýn: flug til Parísar og heim aftur plús tvær nætur á þriggja stjörnu hóteli fyrir litlar 170 þúsund krónur!!!
Það merkir að hver dagur kostar manninn 85 þúsund krónur og gæti vel verið dýrasta pakkaferð sem nokkurn tímann hefur verið í boði á Íslandi.
Einhver kann að hnussa yfir þessu væli okkar. Úrval Útsýn sé að reyna sitt besta til að koma fólki til Parísar til að upplifa stemmarann og mögulega komast á landsleikinn.
En skoðum málið. Flugið kostar/kostaði 120 þúsund með Wow Air og Icelandair fram og aftur þessa daga í aukaferðunum. Ferðaskrifstofan líklega með einhvern smá afslátt hjá flugfélögunum en látum það liggja milli hluta.
Eftir standa 50 þúsund krónur fyrir tvær nætur á þriggja stjörnu hóteli. Nú má fúll lesandi endilega benda okkur á hvaða þriggja stjörnu hótel í París kostar 25 þúsund kallinn per nótt.
Örfá dæmi um hið gagnstæða tekin af hótelbókunarvél Fararheill og verð fyrir tvær nætur 2.-4. júlí:


Nei, Pálmi minn, þú ert nú eiginlega búinn með níðast-á-Íslendingum-kvótann-án-þess-að-gjalda-fyrir. Vonum innilega að enginn hafi látið plata sig í þennan okurpakka.







