Fyrsta sinni þetta sumarið hefur Icelandair fengið samkeppni í beinu flugi milli Keflavíkur og Madríd á Spáni. Það ekki að spyrja að því að íslenska flugfélagið er mun dýrari kostur.

Mun lægra verð til Madríd á Spáni með Iberia Express en Icelandair. Samsett mynd

Mun lægra verð til Madríd á Spáni með Iberia Express en Icelandair. Samsett mynd

Dótturfélag Iberia hins spænska, Iberia Express, flýgur einnig þessa leið í sumar og úttekt Fararheill leiðir í ljós að allra lægstu fargjöld spænska flugfélagsins eru allt að 40 prósent lægri en lægstu fargjöld Icelandair í júlí, ágúst og september.

Iberia Express er titlað lággjaldaflugfélag en til að fá fram eðlilegan samanburð leituðum við ekki að lægst mögulega sæti í boði aðra leið til Madríd heldur tókum næstbesta kostinn, svokallað classic fargjald, en þar er 20 kílóa taska plús sætisval innifalið.

Taflan sýnir allra lægstu fargjöld beggja næstu mánuðina til Madríd aðra leið samkvæmt úttekt okkar kl. 18.30 þann 11. júní 2016. Taska innifalin hjá báðum aðilum. Hafa skal í huga að geti fólk látið handfarangur duga er hægt að finna lægri fargjöld með Iberia Express. Sömuleiðis skal hafa í huga að fargjöld breytast ört hjá báðum aðilum.