Það er ekkert lítið flott tilboð sem Icelandair býður mannskapnum upp á í Kanada og Bandaríkjunum þessi dægrin. Flug fram og aftur til Evrópu gegnum Keflavík niður í 499 kanadíska dollara frá og með næsta hausti. Það gerir rúmar 48 þúsund krónur miðað við miðgengi dagsins.

Aðrir njóta mun betri tilboðskjara hjá Icelandair en við hér heima.
Ferðaþyrstir geta því komist með Icelandair til Kaupmannahafnar og Parísar næsta haust og vetur vel undir 50 þúsund krónum fram og aftur með tveimur töskum og öllum sköttum og gjöldum.
Skemmtilegt að íslenska flugfélagið sem flytur meira að segja íslenska landsliðið í vélum sínum og stærir sig af hefur aldrei nokkurn tímann okkur vitandi boðið Íslendingum slík kjör á flugferðum. Höfum við þó fylgst grannt með tilboðum flugfélagsins um sjö ára skeið.
Nægir kannski að nefna að samkvæmt síðustu hraðtilboðum flugfélagsins var lágmarksverð fram og aftur til Montreal samtals 46.200 krónur og lágmarksverð á tilboði til Toronto 46.200 krónur. Kaninn og Kanadamaðurinn komast þannig mun lengra fyrir nánast sömu upphæð og okkur Íslendingum býðst allra lægst hjá flugfélagi sem kennir sig við landið og hefur náð sér vel á flug vegna Íslands.
En að leyfa innlendingum að njóta bestu kjara hjá innlendu flugfélagi. Neibbs, það lið má eiga sig.







