Aðdáendur bandarískra stórfyrirtækja ættu að gleðjast ef einn góðan veðurdag förinni er heitið í einn af fjölmörgum þjóðgörðum Bandaríkjanna. Þeir gætu nefninlega í framtíðinni heitið eftir styrktaraðilum líkt og íþróttaleikvangar gera nú.

Stórfenglegt útsýnið í Pepsi-garðinum.

Stórfenglegt útsýnið í Pepsi-garðinum.

Hvernig hljómar Pepsi-garðurinn í stað Yosemite? Eða Budweiser-veröldin í stað Grand Canyon? Spennandi ekki satt?

Þetta gæti þó verið framtíðin því sú þær tvær bandarísku stofnanir sem fara með mál þjóðgarða landsins eru svo fjársveltar að forsvarsmenn íhuga nú fyrir alvöru að selja fyrirtækjum leyfi til að nota þjóðgarðana og eða heiti þeirra í kynningarstarfsemi og útiloka jafnvel ekki að leyfa fyrirtækjunum að nefna skika og skika innan garðanna gegn gjaldi.

Ef dæma á eftir sögunni eru þetta fótfesturök. Séu fyrirtækin einu sinni komin með rétt að einhverju innan þjóðgarða er hreint ekki fráleitt að ætla að þau vilji meira þegar fram líða stundir og það kannski akkurat næst þegar þjóðgarðarnir fá minna frá ríkinu en brýn þörf er á.

Kannski Höldur eða Icelandair ættu að prófa að bjóða Vatnajökulsþjóðgarði smá pening næstu misseri. Það er jú ekki eins og íslenskir þjóðgarðar hafi úr miklu að moða 😉