Adam var ekki lengi í paradís og Wow Air ekki heldur. Flugfélagið sem skaut Icelandair aftur fyrir sig á flugeinkunnavefnum Skytrax síðasta vetur er aftur á niðurleið og bæði íslensku flugfélögin í tómu miðjumoði.

Miðjumoð hjá Wow Air og Icelandair þessa vertíðina
Við vöktum athygli á því snemma síðasta vetur að Wow Air náði þá þeim merka áfanga að negla hærri meðaleinkunn meðal notenda á flugvefnum Skytrax en Icelandair. Skytrax er óopinberlega sá flugeinkunnavefur sem bestur og mestur þykir. Wow Air náði þá einkunninni 7 meðan Icelandair hékk í 6 en 10 er besta einkunn sem gefin er.
En eins og með gott kynlíf er úthaldið meginatriðið og þar vantar aðeins upp á hjá Wow Air. Flugfélagið hefur nú fallið niður í sexu eins og Icelandair. Flugfélögin okkar hanga því nokkuð um miðja deild en engir möguleikar á Evrópusæti ef marka má brot af nýjustu umsögnum:











