Ekki er allt svo með öllu slæmt. Nú geta blaðrarar allra landa sameinast í brosi. Allavega Evrópulanda.

Eftirleiðis kostar mun minna að senda sexí myndir frá Tenerife eða Róm til vina og ættingja.

Eftirleiðis kostar mun minna að senda sexí myndir frá Tenerife eða Róm til vina og ættingja.

Um mánaðarmótin tóku gildi nýjar reglur Evrópusambandsins um þak á reikigjöld símafélaga í álfunni og þar Ísland meðtalið auðvitað. Reikigjöld eru þessi fokdýru viðbótargjöld sem við þurfum að greiða ofan á símakostnað þegar hringt er milli Evrópulanda, sendum skeyti eða gögn á milli. Sömu gjöld og hafa komið allmörgum vel í opna skjöldu þegar reikningurinn skilar sér inn um lúguna.

Þetta var fyrra skrefið af tveimur sem ESB tekur til að sporna við þessum gjöldum sem fært hafa símafyrirtækjum ómælda fjármuni en sérstaklega hefur verið gagnrýnt að neytendur eiga mjög erfitt með að átta sig á mismunandi reikigjöldum. Ekki lengur. Nú er komið hámark á reikigjöld og það gildir yfir línuna eins og sést á meðfylgjandi töflu.

Reikigjöld lækkuðu um helling um mánaðarmótin og hverfa alveg sumarið 2017. Skjáskot

Reikigjöld lækkuðu um helling um mánaðarmótin og hverfa alveg sumarið 2017. Skjáskot

Það birtir svo enn meira til sumarið 2017 þegar reikigjöld í Evrópusambandslöndum verða afnumin með öllu sem mun þýða að fólk getur hringt á milli landa og eða notað sér gagnaflutning á sama verði og heimafyrir í öllum löndum álfunnar. Þá þarf enginn að óttast himinháann reikning þó blaðrar sé út í eitt á barnum á Mallorca 🙂