Svo virðist sem Wow Air hafi veðjað á rangan hest þegar ákveðið var að hefja reglulegt flug til Stokkhólms. Sem skýrir líklega að flug þangað fæst nú niður í 5.999 krónur aðra leið.

Dræm sala til „Stokkhólms“ virðist vera raunin hjá Wow Air. Mynd Wow Air
Svo hljómar tilboð Wow Air þennan daginn og skal fúslega viðurkennt að tilboðið er æði gott og dekkar ferðir í maí og júní. Ekki hvað síst gott fyrir þær sakir að ólíkt mörgum öðrum tilboðum flugfélagsins kostar ekki margfalt meira að fljúga heim aftur heldur. Nóg virðist vera af sætum bæði fram og aftur í allt sumar undir tíu þúsund krónum samkvæmt bókunarvél Wow Air.
Kannski hefur líka haft áhrif að ekki er eiginlega um flug til Stokkhólms að ræða eins og Fararheill fjallaði um fyrir nokkru.







