Margur verður af aurum api segir máltækið og það svona smellpassar við hóp auðjöfra í Dúbai í Sameinaða arabíska furstadæminu. Þeir ætla sér að byggja enn eitt háhýsið í þessari gerviborg í eyðimörkinni. Háhýsi sem ber af öðrum háhýsum.

Gangi allt að óskum verður þessi turn risinn árið 2020 og verður þá hæsta bygging veraldar.

Gangi allt að óskum verður þessi turn risinn árið 2020 og verður þá hæsta bygging veraldar.

Vel lesið fólk þekkir tilvist Burj Khalifa turnsins í Dúbai sem er hæsti turn veraldar og skjagar litla 828 metra upp í loftið. En ef áætlanir ganga eftir dugar sú hæð ekki til að halda titlinum hæsta bygging veraldar. Sú bygging verður þó bókstaflega í næsta nágrenni í svona 500 metra fjarlægð eða svo.

Olíufurstar frá furstadæminu ætla sér að reisa enn hærri turn en Burj Khalifa í Dúbai og vera búnir að því eigi síðar en árið 2020 í tæka tíð fyrir Heimssýninguna sem þar fer fram það ár.

Menn sposkir á svip þegar blaðamenn vildu vita nákvæma hæð hins nýja turns og neituðu að gefa upp annað en að hann yrði hærri en hæsti turn veraldar.

Kannski eykur þetta enn straum ferðafólks til borgarinnar. Í það minnsta þeirra sem gleðjast yfir háhýsum. En í borg þar sem enn er gnótt landsvæðis nánast í allar áttir er lítil ástæða til að reisa marga „hæstu“ turna heims nema um hreina tippakeppni sé að ræða.

Að því sögðu er þetta hörmungarmál að því leytinu að ekki hefur lítið farið fyrir mannréttindabrotum furstanna á innfluttu verkafólki í landinu. Þar troðið ítrekað á fólki eins og það sé einskis virði.

Hér má finna annað merkilegt að sjá og gera í Dúbai.