V ið skulum bara viðurkenna það. Stór ástæða þess að okkur flest langar að ferðast út fyrir steina þessa lands er til að komast í fjölbreyttara úrval verslana erlendis sem jafnframt bjóða vörur á töluvert lægra verði en hér er raunin.
Samtök verslunarinnar mega mótmæla til endaloka heimsins en staðreyndin er samt sem áður sú að þær eru vandfundnar verslanir erlendis þar sem ekki má gera mikið betri kaup en hér heima. Gildir þar einu hvort litið er vestur um haf eða austur og ekki síst þegar miðað er við kaupmátt í viðkomandi ríki.
Ritstjórn hefur safnað saman upplýsingum um verðlag á nokkrum vinsælum hlutum og/eða afþreyingu í nokkrum yndislegum borgum heimsins.
Röðin er komin að Madríd höfuðborg Spánar. Verðlag í verslunum þar í bæ miðað við gengi hinnar íslensku krónu gagnvart evru í september 2021 er 37 prósentum lægra en í verslunum í Reykjavík.
Nokkur dæmi: hér kosta vinsælar Levi´s gallabuxur að meðaltali rétt rúmar ellefu þúsund krónur, vinsæl týpa af Nike hlaupaskóm tæplega tólf þúsund krónur og flott jakkaföt frá þekktum merkjum niður í 36 þúsund krónur.
Enn vænlegra er að fara út að borða hér. Máltíð á góðum veitingastað í Madríd kostar 38 prósent minna en sams konar máltíð í Reykjavík. Máltíð á því sem flokkast sem ódýr veitingastaður kostar kringum 800 krónur meðan þríréttað á betri veitingastað fyrir tvo fer rétt rúmlega yfir sex þúsund krónur að jafnaði. Algengt verð á stórum bjór á veitingastað/bar er um 400 krónur.
Stök ferð með strætisvagni innan borgar í Madríd tæmir 200 krónur úr veskinu meðan startgjald leigubifreiða þar í borg er 350 krónur. Bensínlítrinn kostar kringum 165 krónur.
Það verður seint talið til leiðinda að heimsækja Madríd og fyrir þá sem eru að kíkja þangað fyrsta sinni er þjóðráð að skoða vegvísi okkar til borgarinnar hér. Þar ýmsar fínar ábendingar, myndband, upplýsingar um hitastig, verslunarmiðstöðvar og afsláttarverslanir auk allra bestu hótelbókunarvélar heims.
Tvö flugfélög bjóða beint flug til Madríd frá Íslandi. Icelandair og Iberia Express þegar þetta er skrifað. En auðvitað aðeins að sumarlagi.





