Þýska risaflugfélagið Lufthansa hyggur á frekari landvinninga á Íslandi og mun bjóða flug milli Keflavíkur og München í sumar í samkeppni við Icelandair. Úttekt Fararheill leiðir í ljós að hið íslenska er að bjóða lægri fargjöld alla sumarmánuðina.
Við kíktum á hvað þýska flugfélagið væri að bjóða og bárum saman við lægstu fargjöld Icelandair í júní, júlí og ágúst. Án þess að hafa staðfestar upplýsingar um það er æði líklegt að forráðamenn Icelandair hafi lækkað fargjöld sín lítillega þegar ljóst varð að þýski risinn ætlaði í samkeppni á sömu flugleið. Heita má klárt að Icelandair hafi vitað af því töluvert áður en formleg tilkynning um flugið birtist frá Lufthansa.
Það gæti útskýrt merkilega lítinn verðmun á flugi í júlí og ágúst þegar hið íslenska er að bjóða aðeins betur en hið þýska en Icelandair býður aftur mun lægra fargjald í júní eins og sést á meðfylgjandi töflu.
* Úttekt gerð samtímis hjá báðum aðilum kl. 11:30 þann 24. mars 2016. Lægsta verð á flugi fram og aftur innan hvers mánaðar fyrir sig. Taska með hjá báðum. Hafa skal hugfast að verðbreytingar eru örar hjá báðum aðilum og lægstu fargjöld hverfa hraðar en fylgi Framsóknarflokksins.
[alert close=no]Gætið ykkar á bókunarvél Lufthansa. Lægsta uppgefna verð gildir oft um óbein flug auk þess sem lægsta fargjald í beinu flugi er jafnan án farangurs. Vægast sagt ruglandi og leiðinleg bókunarvél.[/alert]







