Risafyrirtækið Icelandair hefur undanfarið verið að uppfæra bókunarvél sína á netinu og fært meira til nútímahorfs. En að auðvelda viðskiptavinum að finna lægstu fargjöld á sem skemmstum tíma? Ekki til að tala um.

Sæmilegt verð á flugi til Orlando en hvenær er þetta? Leitaðu bara. Skjáskot

Sæmilegt verð á flugi til Orlando en hvenær er þetta? Leitaðu bara. Skjáskot

Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna Icelandair er svo mikið í mun að eyða tíma hugsanlegra viðskiptavina sinna til einskis. Það er jú ekki eins og flugfélagið sé að verða hið síðasta sem ekki býður fólki að sjá á augabragði vikur og mánuði fram í tímann. Það þykir sjálfsögð þjónusta hjá velflestum aðilum í flugbransanum þessi dægrin.

Sem dæmi um þjónustuskortinn má taka dæmi af skjáskotinu hér til hliðar. Á vef flugfélagsins segir að lægsta fargjald til Orlandó í Flórída kosti 36.200 krónur.

Nú er aðeins í boði að sjá eina viku í senn á bókunarvél Icelandair. Sem þýðir að það verður að flakka viku og viku í einu til að finna þetta lægsta fargjald til Orlandó. Ritstjórn tímasetti hvað leitin tók langan tíma og það tók rösklega sjö mínútna flakk að komast að 5. september þar sem kostnaður per mann aðra leið til Orlandó fannst á auglýstu verði. Reyndar ekki alveg því þar kostar flugið 35.895 krónur en ekki 36.200 eins og auglýst er lægst.

Svona til að gera flakkið enn erfiðara fengum við þrjár svokallaðar bad gateway meldingar meðan á leitinni stóð. Þá skilur netþjónn Icelandair ekki leitina og fara þarf til baka og endurtaka leitina. Sérlega þjált og neytendavænt allt saman.

Hvernig væri nú að fara að dröslast alla leið inn í nútímann Icelandair og fara að bera virðingu fyrir hugsanlegum viðskiptavinum? Auglýst lægsta verð á að finnast á augabragði.

[vc_empty_space height=“12px“][vc_basic_grid post_type=“post“ max_items=“9″ item=“basicGrid_SlideFromLeft“ grid_id=“vc_gid:1458295018262-59b99d41-3697-4″ taxonomies=“158″]