Þennan daginn bættist enn ein leiðin í flugáætlun Wow Air og barasta ekkert lát virðist á dramatískum uppgangi flugfélagsins. Nú skal láta til skarar skríða til Edinborgar í Skotlandi.

Lifi samkeppnin til Edinborgar
Líkast til finnst forráðamönnum Wow Air ekki leiðinlegt að takast á við risa því þetta er annar áfangastaðurinn í röð þar sem fyrir er í rúmi breska lággjaldaflugfélagið easyJet. Hinn er Bristol en þó sá munur að þar virðist easyJet vera að pakka saman á sama tíma og Wow Air kemur inn í vor. Í öllu falli er ekki hægt að bóka flug til eða frá Bristol með easyJet eftir júlí.
Annað er uppi á teningnum til Edinborgar. Þar er easyJet ekkert að leggja neitt af og því þjóðráð að bera saman það sem Wow Air býður okkur upp á þangað og svo aftur þeir bresku. Í ljós kemur við úttekt Fararheill að þrátt fyrir dágóð „opnunartilboð“ Wow Air þá dugar það varla til eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. EasyJet enn með vinninginn þegar kemur að lægsta verði í tveimur tilfellum af þremur án farangurs. Hér ber þó að hafa hugfast að töskugjald er aðeins lægra hjá íslenska flugfélaginu og munurinn því minni ef farangur er tekinn með.
* Úttekt gerð kl. 15:00 þann 16. febrúar 2016. Leitað að lægsta fargjaldi beggja flugfélaga til og frá innan sama mánaðar. Enginn farangur innifalinn. Hafa skal í huga að verðbreytingar eru mjög örar hjá báðum aðilum.







