Það er ýmsum brögðum beitt til að koma fyrirtækjum á framfæri og lygi og bellibrögð þar ekki undanskilin. Eins og raunin er hjá hótelvefnum Hotels.com sem þessi dægrin auglýsir aldeilis ótrúleg tilboð á gistingu bæði hér heima og erlendis.

Kolólöglegar auglýsingar Hotels.com
Eins og gefur að líta á meðfylgjandi skjáskoti er aldeilis um stórkostleg gistitilboð að ræða. Hér eru einhver dýrustu hótel Íslands á gjafverði svo ekki sé meira sagt. Nótt á 101 Hótel niður í 349 krónur! Fimm hundrað kall fyrir nótt á CenterHotel Arnarhvoll! Nætursvefn á Black Pearl á réttar 356 krónur og svo framvegis og svo framvegis.
Það má heita með ólíkindum að auglýsa með þessum hætti. Hotels.com hefur nánast aldrei boðið lægst né best í hótelbransanum heldur þvert á móti verið með þeim allra dýrustu. Sem kannski útskýrir hvers vegna Icelandair hefur nú tekið upp samstarf við fyrirtækið.
Í þessum tilfellum er um vítaverðar blekkingar að ræða. Engin herbergi finnast á vef þeirra á auglýstu verði og mjög fjarri því. Meðalverð per nótt á þessum þremur hótelum fer sjaldan niður fyrir 20 þúsund krónur.
Kannski þarf starfsfólk Hotels.com þó aðeins að læra að skella sér á námskeið í stærðfræði og læra að yfirfæra verðgildi dollars, punds eða evru yfir í krónur svo sómi sé að. Við hikum ekki við að benda fólki á að gera verðsamanburð hjá okkur annars vegar og Hotels.com hins vegar. Það engin samkeppni.







