Fararheill hefur reglulega bent lesendum sínum á að þegar allt komi til alls eru fargjöld Wow Air á tíðum á pari eða jafnvel hærri en fargjöld annarra flugfélaga á borð við Icelandair. En til Stokkhólms í sumar stendur Wow Air undir nafni.

Til Stokkhólms stendur lággjaldaflugfélagið Wow Air undir nafni í sumar.
Úttekt okkar leiðir í ljós að hjá Wow Air fæst nú flug fram og aftur með eina tösku meðferðis niður í 30.995 krónur á mörgum dagsetningum í sumar meðan lægsta verð í boði hjá Icelandair, sem býður reyndar 23 kílóa tösku með, er 35.365 krónur.
Vissulega enginn stórvægilegur verðmunur en þó sá munur sem eðlilegt er að búast við milli aðila sem flokkar sig sem lággjaldaflugfélag og svo hefðbundins flugfélags. Það á að vera verðmunur enda væri annars lággjaldastimpillinn innantóm orð.
Svo má endalaust deila um þjónustuna sem innifalin er hjá hvorum aðila fyrir sig. Afþreyingarkerfi og netaðgengi hjá Icelandair en þotur Wow Air nýrri og sparneytnari.
Í öllu falli er tæpur fimm þúsund kall klink sé einn aðili að ferðast en ætli fjögurra manna fjölskylda til Svíþjóðar er skjagar munurinn í 20 þúsund. Flesta munar um það.







